Mánudagur 29.08.2011 - 11:02 - Ummæli ()

Flokksráð VG gegn Jóni Bjarnasyni. Lýsa stuðningi við flutning auðlindamála

Nú hefur flokksráð VG ályktað gegn sínum eigin ráðherra vegna flutnings auðlindamála til umhverfisráðuneytisins

Samþykkt var á flokksráðsfundi Vinstri grænna um helgina ályktun þess efnis að stuðningi var lýst við þær hugmyndir að flytja stjórn allra auðlindamála til umhverfisráðuneytisins. Sá stuðningur gengur þvert á vilja Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem vill halda auðlindamálum innan síns ráðuneytis.

Fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna að sameina skuli ráðuneyti og þar tiltekið nýtt umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Þessi hugmynd hefur þó legið í láðinni síðan þá að hluta til vegna andmæla sjávarútvegsráðherra en auk þess hafa hagsmunaaðilar á borð við Landssamtök íslenskra útvegsmanna og Bændasamtökin lagst hart gegn slíku. Hefur Jón látið hafa eftir sér að slíkar breytingar væru hluti af aðlögun Íslands að Evrópusambandinu.

Þessu er flokksráð VG ósammála og hvetur til þess að þetta skref verði tekið í ályktun um helgina. Slíkt væri mikilvægt skref til eflingar stjórnsýslu umhverfis- og auðlindamála.

Mbl.is greindi frá.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is