Frekari sameining sveitarfélaga? Eitt svarið við bágri fjárhagsstöðu þeirra margra
Innanríkisráðherra hyggst láta kanna hug sveitarstjórnar- og þingmanna til frekari sameiningar sveitarfélaga í landinu. Gæti það verið eitt svarið við bágri fjárhagsstöðu margra þeirra í kjölfar bankahrunsins.
Kom þetta fram í máli Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, á ársþingi Samtaka sveitarfélaga um helgina en þar var ráðherra tíðrætt um þá erfiðleika sem verið hefðu og væru framundan hjá mörgum sveitarfélögum landsins.
Fyrirsjáanlegt væri að minnkandi tekjum og hækkandi kostnaði yrði að mæta með niðurskurði eða hækkun gjalda eða hvorutveggja. Tiltók ráðherrann nýlega kjarasamninga sem sérstaklega hefðu reynst sveitarfélögunum erfiðir og hætt væri við að mæta þyrfti þeim auknu útgjöldum með uppsögnum starfsfólks. Það væri slæm þróun að mati Ögmundar.
Morgunblaðið greindi frá.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
