Fimmtudagur 01.09.2011 - 14:58
- Ummæli
()
Athugasemdir á Eyjunni nú á Facebook-formi
Frá og með deginum í dag notar Eyjan samskiptavefinn Facebook til að gera lesendum kleift að skrifa athugasemdir við fréttir og annað efni á vefnum. Þannig geta þeir, sem skráðir eru á Facebook, skrifað athugasemdir sem birtast þá einnig á Facebook-svæði viðkomandi.
Fjölmiðlar víða á Vesturlöndum hafa gert svipaðar breytingar á athugasemdakerfum sínum að undanförnu. Breytingin tekur til ritstjórnarefnis og Silfurs Egils, en einstökum pennum er áfram í sjálfsvald sett hvort og á hvaða formi þeir leyfa athugasemdir.
Eyjan fagnar líflegum skoðanaskiptum hér eftir sem hingað til, en minnir á að ærumeiðingar og önnur óviðeigandi ummæli eru ekki fallin til uppbyggilegrar umræðu.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is