Forsætisráðherra varði Össur með vísun í þingsályktun sem ekki er til
Alþingi hefur aldrei ályktað neitt um átökin í Líbíu eða þátt NATO í þeim átökum en til slíkrar þingsályktunar vísaði forsætisráðherra vegna gagnrýni flokksráðs Vinstri grænna á stuðningi Íslands við loftárásir Atlantshafsbandalangsins.
Skýrir RÚV frá því að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafi vísað í þingsályktun Alþingis aðspurð um þátttöku Íslands í þeirri ákvörðun NATO að hefja loftárásir á Líbíu fyrr í sumar. Hefur flokksráð VG krafist rannsóknar á málinu.
Beindi flokksráðið þeim tilmælum til Alþingis að rannsaka aðdraganda þess að Ísland hafi samþykkt aðgerðirnir sem meðal annars hafi beinst að borgaralegum skotmörkum og valdið tjóni og dauða fjölda óbreyttra borgara.
Aðspurð um viðbrögð sín varði forsætisráðherra Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. „Hann fór fullkomlega að ályktun Alþingis í þessu máli og þetta mál hefur verið rætt í ríkisstjórn þannig að þessi ályktun Vinstri-grænna er mér alveg óskiljanleg.“
Alþingi hefur hins vegar aldrei ályktað um stríðið í Líbíu en þær skýringar fengust í forsætisráðuneytinu að forsætisráðherra hefði verið að vísa í utandagskrárumræður á Alþingi í mars um málefni Líbíu sem og í umræður á nokkrum fundum utanríkismálanefndar þingsins.
Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, sem sat ekki fund flokksráðs VG staðfestir að utanríkisráðherra hafi gætt að þingræðisreglunni og gengið úr skugga um að það væri meirihlutastuðningur á þingi við aðgerðir NATO. Það hafi þó verið ljóst að VG styddi ekki málið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
