Þjóðarpúls: VG tapar fylgi en aðrir flokkar standa í stað. Fleiri myndu kjósa ný framboð

Allir flokkar nema Vinstri grænir standa að mestu í stað í nýrri skoðanakönnun Gallup. VG missir fylgi og hefur ekki mælst minna í fjögur ár
Fylgi allra stjórnmálaflokka mælist svipað og verið hefur samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Rúmur þriðjungur segist styðja ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna en þeim fjölgar sem geta hugsað sér að kjósa ný framboð í næstu kosningum.
Birti RÚV niðurstöður nýs þjóðarpúls Gallup í kvöld en þar mælist stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og verið hefur í könnunum í sumar. Allir flokkarnir standa að mestu í stað nema fylgi Vinstri grænna minnkar og hefur ekki mælst minna í fjögur ár.
Af þeim er afstöðu taka styðja 17 prósent Framsóknarflokkinn, 36 prósent Sjálfstæðisflokkinn, 22 prósent Samfylkinguna og þrjú prósent setja sitt atkvæði á Hreyfinguna.
Fjórtán prósent þeirra sem svöruðu þjóðarpúlsi Gallup í ágúst myndu ekki kjósa eða skila auðu á kjördag. Næstum jafn margir taka ekki afstöðu milli flokka. Af þeim sem afstöðu tóku sögðust nærri 17% styðja Framsóknarflokkinn, tæp 36% styðja Sjálfstæðisflokkinn, um 3% styðja Hreyfinguna og 22% styðja Samfylkinguna. Vinstri grænir njóta fylgis 14 prósenta.
Níu prósent svarenda telja ástæðu til að styðja ný framboð en það er töluverð aukning frá síðustu könnun Gallup. 4.200 manns voru í úrtaki Gallup að þessu sinni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is