Fagnar framtaki Arion. Margir hafa áhuga á óverð- tryggðum fasteignalánum

Fjölbreyttari valkostir í fasteignakaupum bjóðast nú eftir að Arion banki hóf að bjóða óverðtryggð lán
Formaður Félags fasteignasala, fagnar þeim tegundum óverðtryggðra fasteignalána sem Arion banki hefur nú kynnt til sögunnar og telur víst að margir hafi áhuga á slíkum lánum eftir það sem á undan er gengið.
Tilkynnti Arion banki í vikunni að bankinn hyggist bjóða viðskiptavinum sínum óverðtryggð íbúðalán til 25 eða 40 ára. Yrðu þau lán með föstum vöxtum til fimm ára. Eru þó vextir á þeim lánum endurskoðaðir á fimm ára fresti og taka mið af markaðsvöxtum sem í gildi eru á hverjum tíma.
Um tvennskonar óverðtryggð lán er að ræða. Annars vegar lán sem nema allt að 60% af veðhlutfalli fasteignar, bera 6,45% fasta vexti í fimm ár og eru til 25 eða 40 ára. Hins vegar viðbótarlán sem nema frá 60% til 80% af veðhlutfalli fasteignar og bera 7,55% fasta vexti í fimm ár.
Óverðtryggðu lánin geta í flestum tilvikum verið betri kostur fyrir þá sem þola þyngri greiðslubyrði en í staðinn eru vextir mun lægri en ella þegar upp er staðið. Telur Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, engan vafa leika á að eftirspurn sé eftir slíkum valkostum á fasteignamarkaði.
„Þessi verðtryggðu lán hafa verið algjör martröð á þjóðinni í rúmlega 30 ár. Það er engin leið fyrir fólk að vita hvernig það stendur eftir 5 eða 10 ár.“
Þá hafa líkurnar á að Íbúðalánasjóður fái leyfi til að bjóða slík lán í vikunni þegar félags- og trygginganefnd Alþingis samþykkti að gera um slíkt tillögu og leggja fyrir þingið. Varaformaður nefndarinnar, Sigríður Ingribjörg Ingadóttir, telur ekki fráleitt að ætla að lög þess efnis verði samþykkt strax í þessum mánuði.
Samkvæmt fyrirspurn Morgunblaðsins hjá lífeyrissjóðum landsins hefur það ekki komið til tals að bjóða slík lán gegnum sjóðina
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is