Stuðningsmenn Hönnu Birnu leka könnun sem sýnir yfirburðastöðu hennar gegn Bjarna Ben
Könnun, sem stuðningsmenn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur létu gera í sumar en birtu fyrst í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, bendir til þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir njóti mun meira trausts til að gegna embætti formanns Sjálfstæðisflokksins en Bjarni Benediktsson núverandi formaður.
Capacent kannaði stuðninginn fyrir stuðningsmenn Hönnu Birnu í júlí.
Niðurstaðan er sú að hjá öllum almenningi segjast 40,2% treysta Hönnu Birnu best til að gegna formennsku í flokknum. 11,1% nefna Bjarna Benediktsson, 7,6% Kristján Þór Júlíusson, þingmann flokksins, 5,5% varaformanninn Ólöfu Nordal en 1,9% Guðlaug Þór Þórðarson, alþingismann.
Meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins nýtur Hanna Birna mests stuðnings frá 51,4% en aðeins 24,3% kjósenda Sjálfstæðisflokksins treysta formanninum, Bjarna Benediktssyni, best til áframhaldandi formennsku. Ólöf Nordal fékk traustsyfirlýsingu frá 8,0% kjósenda Sjálfstæðisflokksins en 6,7% þeirra nefndu Kristján Þór Júlíusson.
Könnunin var gerð meðal 1.320 manna handahófsúrtaks úr þjóðskrá. Svarhlutfall var um 60% og um 80% svarenda tóku afstöðu til spurningarinnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is