Rúmur helmingur hefur ekki kynnt sér frumvarp stjórnlagaráðs
46,9% landsmanna hafa kynnt sér frumvarp stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrá, ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar MMR. 62,5% fólks yfir fimmtugu hefur kynnt sér frumvarpið.
Þar kemur fram að 53,1% hefur ekki kynnt sér frumvarpið en 33,4% segjast hafa kynnt sér það lítillega.
11,3% hafa að eigin sögn kynnt sér það nokkuð vel en 2,2% segjast hafa kynnt sér frumvarpið vel.
Samkvæmt könnuninni var nokkur munur eftir aldri, kyni og fleiri breytum á því hvort fólk hefði kynnt sér frumvarp Stjórnlagaráðs. Þannig höfðu 58,2% karla en 35,8% kvenna kynnt sér frumvarpið. Því eldra sem fólk er, því líklegra er það til að hafa kynnt sér frumvarpið. 55,8% stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar hafa kynnt sér frumvarp stjórnlagaráðs en 48,4% þeirra sem segjast ekki styðja ríkisstjórnina. 48,6% íbúa á höfuðborgarsvæðinu en 43,9% fólks á landsbyggðinni hefur kynnt sér frumvarpið.
Taflan hér til hliðar sýnir nánar hvernig mismunandi afstaða kemur fram eftir ýmsum breytum. Hægt er að sjá myndina í fullri stærð með því að smella á hana tvisvar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
