Þriðjudagur 13.09.2011 - 10:55 - Ummæli ()

Vilja sameina öll sveitarfélög með færri en 1.500 íbúa

Fjöldi sveitarfélaga í landinu nú eru 76 talsins. Þeim fækkar töluvert ef lágmarksstærð verður miðuð við 1.500 íbúa

Tveir þingmenn Samfylkingarinnar í samgöngunefnd vilja að öll sveitarfélög landsins með færri en 1.500 íbúa verði sameinuð.

Er þetta vilji þeirra Marðar Árnasonar og Sigmundar Ernis Rúnarssonar sem vilja slíka breytingartillögu inn í nýtt frumvarp Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, til nýrra sveitarstjórnarlaga. Er þetta meðal fjölmargra breytingartillagna sem fram komu við umfjöllun samgöngunefndar á nýju frumvarpi sem stefnt er að verði að lögum á yfirstandandi þingi. Er frumvarpið unnið í samvinnu við sveitarfélögin í landinu.

Meðal annars í frumvarpinu sem vakið hefur umtal og Eyjan fjallaði um í gær er krafan um að skuldir og skuldbindingar sveitarfélaga landsins megi ekki fara yfir 150 prósent af tekjum.

Munu samkvæmt úttekt Morgunblaðsins ein 20 sveitarfélög vera töluvert yfir þessum mörkum í dag. Mörg þeirra verulega hátt yfir mörkunum eins og Hafnarfjarðabær með 198,4 prósent skuldsetningu umfram tekjur, Mosfellsbær 161,3%, Kópavogur 177,1% og Reykjanesbær 360,8% svo dæmi séu tekin.

Meirihluti samgöngunefndar telur eðlilegt að gefa þessum sveitarfélögum sex ár til að taka til í sínum rekstri og komast undir mörkin en formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Halldór Halldórsson, bloggar á Eyjunni um að tíu ára frestur sé nærri lagi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is