Miðvikudagur 14.09.2011 - 19:40 - Ummæli ()

Capacent kannar hvaða eftirspurn er eftir Davíð Oddssyni til formennsku í Sjálfstæðisflokknum

Capacent kannar nú hvaða eftirspurn er eftir Davíð Oddssyni í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins.

Capacent er nú að kanna hvaða eftirspurn er eftir því hjá fólki að Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra og Seðlabankastjóri,  taki á ný við formennsku í Sjálfstæðisflokknum.

Eins og jafnan hefur Capacent sent út nú í septembermánuði spurningavagn þar sem stórt úrtak karla og kvenna um land allt er spurt um fylgi við stjórnmálaflokka og fjölmörg önnur málefni.

Að þessu sinni er ein spurningin svohljóðandi:

„Formaður Sjálfstæðisflokksins verður næst kosinn á landsfundi í nóvembernæstkomandi. Hverju eftirtalinna treystir þú best til að leiða Sjálfstæðisflokkinn?

Kristjáni Þór Júlíussyni

Hönnu Birnu Kristjánsdóttur

Ólöfu Nordal

Davíð Oddssyni

Bjarna Benediktssyni

Öðrum hverjum/annarri hverri?

Engum

Vil ekki svara

Eins og Eyjan sagði frá láku stuðningsmenn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur síðastliðinn laugardag niðurstöðum könnunar sem þeir létu gera í júní þar sem fram kom að Hanna Birna nyti mun meiri stuðnings innan og utan Sjálfstæðisflokksins en Bjarni Benediktsson, núverandi formaður.

Munurinn á spurningunni í þeirri könnun og þessari er fólginn í því að nú er ekki kannaður áhugi á framboði Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heldur er nafn Davíðs Oddssonar nefnt í staðinn en stuðningur við framboð Davíðs var ekki meðal þeirra möguleika sem stuðningsmenn Hönnu Birnu létu kanna.

Eyjan hefur ekki staðfestar upplýsingar um það hverjir hafa keypt þjónustu Capacent til að spyrja um fylgi við Davíð Oddsson ásamt helstu núverandi foringjum flokksins, þótt ætla megi að það séu einstaklingar sem standa Davíð nærri.

Í kjölfar fréttarinnar um könnun stuðningsmanna Hönnu Birnu kölluðu ýmsir stuðningsmenn eftir því að gerð yrði könnun á stuðningi við Davíð, þar á meðal Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sem ritaði pistil um málið á Evrópuvaktina og sagði meðal annars:

„Stuðningur við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í umræddri skoðanakönnun kemur ekki á óvart. Í umræðum flokksmanna á milli á undanförnum mánuðum hafa tvö nöfn fyrst og fremst verið til urmæðu sem hugsanleg formannsefni auk Bjarna. Það eru Hanna Birna og Davíð Oddsson, en þeir eru býsna margir flokksmenn, sem kallað hafa eftir endurkomu hans.

[ . . . ]

Nafn Davíðs Oddssonar kemur ekki við sögu í þessari könnun [stuðningsmanna Hönnu Birnu]. Ekki liggur ljóst fyrir hvernig spurt var, hvort fólki var boðið að velja á milli mismunandi nafna eða hvort engin nöfn voru nefnd. Hitt er staðreynd, að alveg frá hruni hafa býsna margir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins kallað eftir endurkomu Davíðs á vettvang stjórnmálanna. Mér hefur sýnzt að það kall kæmi ekki sízt frá þeim hópi innan flokksins, sem á og rekur lítil og meðalstór fyrirtæki, en sá hópur er að sjálfsögðu ein af kjölfestum Sjálfstæðisflokksins, menn sem vilja sjá aðgerðir og árangur. Aðrir benda á að endurkoma Davíðs yrði umdeild á landsvísu.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is