Miðvikudagur 14.09.2011 - 09:57 - Ummæli ()

Styrmir: Ljóst að forsetinn vill sitja áfram. Reynir að ná til sjálfstæðismanna

Fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins telur allt stefna í mikið uppgjör vinstri manna á Íslandi við næstu kosningar.

Enginn vafi leikur á því í huga Styrmis Gunnarssonar, fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins, að Ólafur Ragnar Grímsson vill vera forseti Íslands áfram. Það er ástæða þess að hann er kominn í hár saman við fyrrum samherja úr pólitíkinni því með því er Ólafur að reyna að tryggja sér stuðning sjálfstæðismanna.

Þannig sér ritstjórinn fyrrverandi stöðuna fyrir sér og fjallar um í pistli á vef Evrópuvaktarinnar í dag. Telur Styrmir að eitt allsherjar uppgjör vinstri manna á Íslandi sé framundan í næstu kosningum.

Styrmir fullyrðir svo sjálfur að atlaga Ólafs að Steingrími J. Sigfússyni sé ekki ýkja galin. Ótrúlegur fjöldi stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins sé reiðubúinn að styðja forsetann eftir framgöngu hans í Icesave-málinu.

Eftir því, sem hann skammar ráðherrana í núverandi ríkisstjórn meira fyrir aumingjaskap þeirra í Icesave-málinu er líklegt að fylgi hans í kjósendahópi Sjálfstæðisflokksins vaxi. Þetta er óneitanlega athyglisverð þróun.

Úrslitaorustan verður háð í forsetakosningunum á næsta ári. Þá munu vinstri menn tjalda öllu til í því skyni að fella Ólaf Ragnar. Það verður svokallaður leðjuslagur. Verði þeim að góðu.

Í þingkosningunum 2013 munu Samfylking og Vinstri grænir berjast til blóðs. VG hefur miklar áhyggjur af úrslitum sveitarstjórnarkosninganna í Noregi, þar sem systurflokkur þeirra Sósialistiske venstre beið afhroð og vinkona Steingríms J. Kristín Halvorsen átti ekki annan kost en tilkynna að hún gæfi ekki kost á sér á ný, sem leiðtogi flokksins. VG telur að ástæðan fyrir fylgistapi SV sé að flokkurinn hafi verið orðinn of líkur Verkamannaflokknum. Norska dagblaðið Aftenposten segir að valdahroki ráðherra SV sé ástæðan fyrir afhroðinu.

Flokkarnir tveir munu rífast um hvor þeirra beri ábyrgðina á stöðnun í atvinnumálum á Íslandi. Þá mun koma upp á yfirborðið langvarandi gremja Samfylkingar í garð VG vegna þess, að VG hefur í raun stöðvað stóriðjuframkvæmdir á Íslandi.

Vinstri grænir munu berjast innbyrðis um það hver þeirra beri mesta ábyrgð á svikunum við kjósendur í ESB-málum. Og Steingrímur J.mun eiga í vök að verjast vegna þeirrar tvöfeldni, sem hann hefur sýnt í Magma-málum.

Og loks má búast við því að hinir útskúfuðu í Samfylkingunni, gamlir Alþyðuflokksmenn, leiti sér að nýjum vettvangi í pólitíkinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is