Fimmtudagur 15.09.2011 - 20:00 - Ummæli ()

Íbúðaverð allt of hátt. Innistæða talin fyrir 50 prósent lækkun í viðbót

Enn er innistæða fyrir mikilli lækkun á fasteignamarkaði að mati sérfræðinga

Íbúðaverð á landinu er of hátt að mati sérfræðinga og mikil innistæða enn fyrir lækkunum að þeirra mati og jafnvel um allt að 50 prósent frá því sem nú er.

Hefur meðalfermetraverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað um þriðjung frá árinu 2007 að raunvirði samkvæmt útreikningum sem kynntir voru í dag en þá var kynnt ný greining á íslenska fasteignamarkaðnum sem gerð var af Ársæli Valfells, lektor við Háskóla Íslands, og Brynjari Péturssyni, ráðgjafa.

Segja þeir félagar einu leiðina til að breyta horfum á markaðnum sé að lækka vexti og auka kaupmátt almennings. Ávöxtunarkrafa fjárfesta til fasteigna í dag sé of lág sem þýði að þeir eru í raun að niðurgreiða fjárfestingar sínar og það gangi ekki til lengdar. Það sé því innistæða fyrir enn frekari lækkun fasteignaverðs á markaðnum. Telja þeir innistæðu fyrir 30 til 50 prósenta lækkun frá því sem nú er en það sé þó misjafnt milli svæða.

Segir Ársæll að enn sé of mikill munur á því sem íbúðarhúsnæði kostar og þess sem fólk hefur efni að borga. „Raunverðið hefur ekki lækkað í átt að kaupmætti svo það er ennþá bil á milli þess sem við höfum efni á að borga fyrir húsnæði og þess sem það kostar. Það munar um 11 til 12 prósentum. Það segir okkur allavega að ef verðið lækkar ekki, þá verður áfram þungt fyrir okkur að eignast húsnæði.

„Til þess að þetta verð geti staðið undir sér, þá þarf kaupmáttur að fara að vaxa, sem þýðir að við höfum meiri peninga til ráðstöfunar til kaupa á húsnæði. Kostnaður við húsnæðiskaup þarf líka að lækka, og þar er einn stærsti kostnaðarliðurinn auðvitað vextir.“

„Þetta skrítna ástand þar sem verð helst hátt miðað við kaupmátt og mikið eignaframboð afhjúpar kostnaðinn við það að vera með eigið peningakerfi þar sem við erum rukkuð um hátt verð fyrir að binda fjármagn í eignum á borð við fasteignir. Daginn sem við förum út úr þessum háu vöxtum myndast svigrúm fyrir fasteignir til að hækka aftur í verði.“

Stöð 2 greindi frá.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is