Íslendingar nota 21% ráðstöfunartekna í húsnæðiskostnað – 30% búa í skuldlausu húsnæði
Húnæðiskostnaður hér á landi var 21% af ráðstöfunartekjum á árinu 2010, samkvæmt því sem fram kemur í svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra við fyrirspurn frá Birgittu Jónsdóttur, Hreyfingunni.
Um 30% landsmanna bjuggu í skuldlausu húsnæði í desember síðastliðnum en um 16% voru hins vegar í skuldavandræðum fyrir efnahagshrunið haustið 2008.
Húsnæðiskostnaður landsmanna hækkaði um brot af prósenti frá árinu 2009 en þá var hann 20,7% og hvergi lægri á Norðurlöndum nema í Finnlandi. Árið 2004 var hlutfallið hérlendis 21,3% en 24,4% árið 2006.
Fréttablaðið segir frá þessu í dag og vitnar í skriflegt svar ráðherrans við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur, sem er hins vegar ekki enn orðið aðgengilegt á vef Alþingis. Guðbjartur Hannesson gat þessa hins vegar í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær.
Guðbjartur nefndi í að þessar töldu sýndu fyrst og fremst hve ólík staða fólks væri hér á landi. Fjölmargir stæðu vel eins og sjáist af fjölda þeirra sem búa í skuldlausu húsnæði. Það dragi hins vegar ekkert úr því að margir eigi í brýnum vanda og það sé meginverkefni stjórnvalda að finna lausnir á málum þeirra sem eiga við vanda að stríða á hverjum tíma.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is