Mánudagur 26.09.2011 - 21:29 - Ummæli ()

Björn um stefnu Jóns Ásgeirs: Tilraun til þöggunar. Enginn mun þora að skrifa um ákveðna menn

Björn Bjarnason

„Megi menn ekki, án þess að eiga milljón króna skaðabótakröfu yfir höfði sér, gera í raun saklausa villu í umfjöllun um gríðarflókin efnahagsbrot í bók sem snýst ekki um lögfræðilega greiningu á þeim brotum, villu sem þeir gera allt sem þeir geta til að leiðrétta um leið og hún verður þeim ljós, mun enginn maður þora að taka til máls um flókin efnahagsbrot að minnsta kosti ekki ef ákveðnir einstaklingar eiga í hlut,“ segir Björn Bjarnason.

Hann ritar í kvöld pistil á heimasíðu sína í tilefni af því að hann hefur móttekið stefnu frá Gesti Jónssyni, hæstaréttarlögmanni, þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson krefur hann um eina milljón króna í bætur fyrir að hafa heimfært það hegningarlagabrot sem Jón Ásgeir var dæmdur fyrir í Baugsmáinu ranglega til hegningarlagaákvæðis.

Björn segir:

„Tilgangurinn með stefnunni er öðrum þræði að fæla aðra frá því að skrifa um Baugsmenn. Þeir vita að frá mörgu öðru er að segja um framgöngu þeirra en ég rek í bók minni. Hún snertir aðeins framhliðina ef svo má segja, því að hún byggist á opinberum gögnum. Bakhliðin er eftir. Það sem menn segja þegar við þá er rætt og trúnaði heitið við heimildarmenn.“

Björn skrifaði að Jón Ásgeir hefði verið dæmdur fyrir fjárdrátt en rétt er að hann var sakfelldur fyrir meiriháttar bókhaldsbrot. Refsiramminn er sá sami við báðum brotum. Björn hefur leiðrétt villuna í seinni prentun bókarinnar og beðist opinberlega afsökunar á villunni en þarf engu að síður að verjast stefnu vegna meiðyrða og hefur ráðið Jón Magnússon hæstaréttarlögmann til að annast vörn sína. „Ásetningur að baki villunni var enginn,“ segir Björn.

Björn fjallar um stefnuna í bloggi sínu í kvöld og segir m.a.:

„Eftir að ég hef birt leiðréttingu mína á netinu, í Morgunblaðinu og 2. prentun bókarinnar hef ég gert það sem í mínu valdi er til að takmarka „tjónið“ sem kann að hafa orðið fyrir vegna mistakanna. Ég set orðið „tjón“ innan gæslappa því að JÁJ var sannarlega sakfelldur fyrir brot þar sem refsirammi er hinn sami hvort heldur er um fjárdrátt eða meiriháttar bókhaldsbrot að ræða. Að það hafi verið ásetningur minn að bera JÁJ röngum sökum er fráleitt. Brotið sem leiddi til sakfellingar yfir JÁJ hafði sömu takmarkanir í för með sér fyrir hann og brotið sem nefnt er í villunni í 1. prentun bókarinnar. Að því leyti magnaði missögnin ekki sekt hans að lögum.

Þegar ég skrifaði bók mína og sá hvernig lögmenn og aðstoðarmenn JÁJ fóru í saumana á öllu sem ég sagði og skrifaði í tengslum við JÁJ, Baugsmenn og Baugsmiðla blasti við að þeir sem koma við sögu í bókinni mundu leggjast yfir hana í leit að misfellum. Ásetningur að baki villunni var enginn. Megi menn ekki, án þess að eiga milljón króna skaðabótakröfu yfir höfði sér, gera í raun saklausa villu í umfjöllun um gríðarflókin efnahagsbrot í bók sem snýst ekki um lögfræðilega greiningu á þeim brotum, villu sem þeir gera allt sem þeir geta til að leiðrétta um leið og hún verður þeim ljós, mun enginn maður þora að taka til máls um flókin efnahagsbrot að minnsta kosti ekki ef ákveðnir einstaklingar eiga í hlut.

Einn af þráðunum í bók minni snýst um þann þátt Baugsmálsins að á þriðja milljarð króna var að sögn Baugsmanna varið til að verjast ákærunni. Þetta er ótrúlega há upphæð á alla mælikvarða og sýnir að ekkert var til sparað. Ég tel að fjárfestingin hafi ekki aðeins miðað að því að verjast í réttarsalnum heldur hafi tilgangur hennar einnig verið sá að fæla aðra eftirlitsaðila en lögregluna frá afskiptum af Baugsmönnum og umsvifum þeirra. Stefnan gegn mér er af sömu rót runnin.

Í raun er ekki um neinn réttarágreining milli mín og stefnanda að ræða, því að ég hef ómerkt gagnrýnisverða orðið og beðist afsökunar. Tilgangurinn með stefnunni er öðrum þræði að fæla aðra frá því að skrifa um Baugsmenn. Þeir vita að frá mörgu öðru er að segja um framgöngu þeirra en ég rek í bók minni. Hún snertir aðeins framhliðina ef svo má segja, því að hún byggist á opinberum gögnum. Bakhliðin er eftir. Það sem menn segja þegar við þá er rætt og trúnaði heitið við heimildarmenn.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is