Börnin okkar hafa það fínt. Ný rannsókn á líðan ungmenna

Ný rannsókn um líðan og aðstæður íslenskra ungmenna verður kynnt í dag. (Mynd: Reykjavíkurborg)
Ný og viðamikil rannsókn bendir til þess að líf barna i efri bekkjum grunnskóla sé í meginatriðum gott. Flestir hafa sterka sjálfsmynd og líður vel, en fjórðungur les engar bækur nema skólabækurnar og allt að tíu prósentum segjast eiga fáa eða enga vini.
Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar sem fyrirtækið Rannsókn og greining vann fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Rannsóknin verður kynnt á fundi í dag, en í tilkynningu er lýst þessum niðurstöðum:
• Meirihluti barna í 5., 6. og 7. bekk hefur sterka sjálfsmynd og líður almennt vel.
• Börn sem stunda íþróttir reglulega eru síður einmana en önnur börn.
• Mikill meirihluti nemenda í 5., 6. og 7. bekk fær hjálp frá pabba, mömmu eða systkinum við heimanámið. Stelpur eru fjölmennari í þeim hópi.
• Miklum meirihluta líður vel heima hjá sér og ver drjúgum tíma með foreldrum sínum.
• Hlutfall þeirra sem hreyfa sig mikið hefur hækkað undanfarin ár, en hlutfall þeirra sem hreyfa sig lítið sem ekkert hefur líka hækkað.
• Um og yfir 70 prósent nemenda segjast eiga marga vini. Nær enginn munur er á kynjum í þessu efni. 7-10 prósent segjast eiga fáa eða enga vini.
• Mikill meirihluti segist aldrei hafa tekið þátt í stríðni eða einelti í skóla. Stelpur eru fjölmennari í þeim hópi.
• Tæplega 11 prósentum fnnst námið of erfitt. Næstum jafnmörgum finnst námið of létt.
• Hátt í fjórðungur segist engan tíma nota í lestur annarra bóka en skólabóka. Strákar eru fleiri en stelpur í þessum hópi.
• Um 92 prósent eiga gsm síma.
• Um og yfir 20 prósent segjast eiga erfitt með að sofna á kvöldin.
• Á um 17 prósent heimila er talað annað tungumál ásamt íslensku.
• Um 20 prósent búa ekki með föður sínum en um 5 prósent ekki með móður.
• Hátt í tíu prósentum nemenda finnst þau ekki örugg á skólalóðinni.
Spurningar í rannsókninni voru lagðar fyrir nemendur í öllum grunnskólum landsins í febrúar á þessu ári.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is