Fimmtudagur 29.09.2011 - 09:47 - Ummæli ()

Mogginn: Baugsmiðlar og RÚV í áróðursherferð gegn ríkislögreglustjóra

Baugsmiðlarnir blása upp fréttir um „smávægileg innkaup“ ríkislögreglustjóra og Ríkisútvarpið eltir þá eins og skugginn í „furðulegri áróðursherferð“ þar sem öllu er snúið á haus.

Þetta er niðurstaða leiðarahöfundar Morgunblaðsins í dag. Hann segir einnig að hamagangurinn komi ekki á óvart og „allir vita af hverju hann þarf ekki að koma á óvart.“

Höfundurinn bætir við að Ríkisendurskoðun sé virt stofnun sem eigi ekki að „taka þátt í spili og spuna fjölmiðla vegna smávægilegrar athugasemdar hennar.“

Það er ennfremur skoðun Morgunblaðsins að illa hefði getað farið ef embætti ríkislögreglustjóra hefði fylgt „leiðbeiningum um opinber innkaup“ blindandi og mistekist að tryggja öryggi í landinu. En þeirrar skoðunar séu væntanlega ekki þeir sem „blésu í glæður uppþota og skemmdarverka, skipulögðu og kostuðu þær,“ eins og segir í leiðaranum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is