Fimmtudagur 06.10.2011 - 07:55 - Ummæli ()

Fóru á tónleika á kostnað bæjarsjóðs. Endurgreiða „af því að aðsókn var góð“

Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar. Efri röð: Hlín Bolladóttir, Tryggvi Gunnarsson, Anna Hildur Guðmundsdóttir. Neðri röð: Heimir Haraldsson, Guðlaug Kristinsdóttir.

Fulltrúar í samfélags- og mannréttindaráði Akureyrarbæjar létu bæjarsjóð kaupa miða á tónleika og notuðu miðana svo sjálfir.

Þetta kemur fram í vikublaðinu Akureyri sem dreift var á Eyjafjarðarsvæðinu í morgun.

Um var að ræða styrktartónleika sem kenndir eru við Sissu, Sigrúnu Mjöll Jóhannesdóttur, unga stúlku sem lést af of stórum skammti fíkniefna í fyrrasumar.

Samfélags- og mannréttindaráð hafði ákveðið að styrkja tónleikana með 50.000 króna fjárframlagi, en ákvað síðar að bærinn skyldi einnig kaupa tíu miða. Ráðsmenn sjálfir, bæði aðalmenn og varamenn, nýttu sér svo miðana og mættu saman á tónleikana.

Hlín Bolladóttir, formaður ráðsins, segir í samtali við Akureyri að þetta hafi verið ákveðið þegar svo virtist sem aðsókn á tónleikana yrði treg. Annað hefði komið í ljós og því hafi orðið að samkomulagi innan ráðsins að einstaklingarnir, sem nýttu sér miðana, greiði þá úr eigin vasa.

Aðspurð hvort hún telji ekkert óeðlilegt við að opinbert fé hefði verið notað með þessum hætti svarar Hlín: „Jú, eftir á að hyggja má gera athugasemdir við þessa stjórnsýslu, allt orkar tvímælis þá gjört er og ég er opin fyrir gagnrýni. En við sem sagt gerðum þetta í góðri trú og munum nú greiða miðana til baka þar sem ljóst er að aðsókn á tónleikana var góð.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is