Vísa á bug að neyðarlög hafi hyglað innlendum innistæðueigendum umfram aðra

Neyðarlögin hygldu ekki innlendum innistæðueigendum umfram þá erlendu að því er fram kemur í bréfi stjórnvalda til eftirlitsstofnunar EFTA
Í bréfi því er íslensk stjórnvöld hafa sent eftirlitsstofnun EFTA, ESA, vegna Icesave reikninga gamla Landsbankans er því mótmælt að neyðarlögin hafi hyglað innlendum innistæðueigendum umfram erlendra eins og ESA vill meina að hafi verið raunin.
Hefur Fréttablaðið svar stjórnvalda undir höndum þar sem þetta kemur fram og Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, skrifar undir.
Kemur þar fram sú skoðun íslenskra stjórnvalda að í raun og veru hafi neyðarlögin 2008 tryggt Bretum og Hollendingum tæplega 200 milljörðum króna hærri fjárhæð upp í kröfur sínar en ella hefði orðið raunin.
Ennfremur er ítrekað í svarinu að að fræg viljayfirlýsing ríkisstjórnar Geirs Haarde frá 11. október 2008 hafi ekki haft neinn lagalegan grunn. Í þeirri yfirlýsingu var Tryggingarsjóður innstæðueigenda sagður myndu tryggja lágmarksupphæð reikninganna samkvæmt evrópskum reglum.
ESA skoðar enn hvort leggja eigi í málaferli gegn Íslendingum fyrir brot á samningum en engin ákvörðun hefur enn verið tekin í því máli.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is