Tæp 90 prósent telja ráðningu Páls Magnússonar í forstjórastarf Bankasýslu óeðlilega

Könnun MMR sýnir óumdeilt að skipun Páls Magnússonar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins þykir óeðlileg
Stór meirihluti svarenda er á þeirri skoðun að ráðning Páls Magnússonar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins hafi verið óeðlileg.
Gerði MMR könnun meðal 900 einstaklinga á því hvort ráðningin á Páli þætti eðlileg og svöruðu 89 prósent því til að svo væri ekki. Eingöngu ellefu prósent töldu ráðningu Páls eðlilega.
Páll var meðal annars aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur þegar einkavæðing bankanna stóð sem hæst og hefur verið bæjarritari Kópavogsbæjar undanfarin ár. 60 prósent aðspurðra tóku afstöðu til spurningarinnar en könnunin var gerð að undirlagi Teits Atlasonar, íslenskukennara og bloggara.
Hafa ýmsir í netheimum sett fram harkalega gagnrýni á ráðninguna og sagt dæmi um hve lítið hefur hér breyst þrátt fyrir allt. Meðal þeirra eru Illugi Jökulsson og þingmaðurinn Björn Valur Gíslason.
Þá hefur stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins sagt að Páll hafi ekki verið sérfróðastur um banka og fjármálastarfsemi af þeim er um embættið sóttu. Páll er með BA próf í guðfræði og meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is