Evra eins og klettur í hafi miðað við krónu. Notum ESB til að draga okkur upp úr hjólförunum
„Við eigum ekki að láta skammtíma vanda evru, dollars og jens villa okkur sýn, evran er eins og klettur í hafinu borið saman við þá krónu sem við búum við!“ sagði Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ í ávarpi sem hann flutti þingi Starfsgreinasambandsins í morgun.
Hann sagði að Íslendingar ættu að nota aðild að Evrópusambandinu til að draga þjóðfélagið upp úr þeim hjólförum sem það er nú fast í og stefni í átt að langvarandi ófremdarástandi í þjóðfélaginu.
Gylfi kom þar víða við í ræðu sinni og sagði að að óbreyttu væru langvarandi gjaldeyrishöft óhjákvæmileg og allt stefndi í tímabil sambærilegt við árin 1945-1990 þegar þjóðfélagið var fast í höftum, skömmtunum og gengisfellingum og kaupmáttur launafólks rýrnaði að meðaltali um 0,4% á ári þótt lífsgæði hafi aukist vegna mikillar aukavinnu og atvinnuþátttöku kvenna.
Hann vék í framhaldinu að aðildarviðræðum við ESB og gagnrýndi að markvissa pólitíska forystu vantaði í því máli. ASÍ hefði frá upphafi ferlisins lagt áherslu á að Ísland fengi aðild að evrópska myntsamstarfinu (ERM II) en í framhaldinu fulla aðild að myntsamstarfinu með upptöku evru. Hann sagði:
„Í ljósi þess að krónan okkar á sér ekki viðreisnar von og við blasa gjaldeyrishöft um ókomin ár er ég þeirrar skoðunar að við eigum að ræða við pólitíska forystumenn í Evrópu um beina aðstoð þeirra til að treysta stöðu gjaldmiðilsins, hugsanlega með því að tengja krónuna beint við evruna með stuðningi þannig að almenningur og fyrirtæki fái fyrr notið vaxtalækkana og stöðugleika.
Við eigum að setja fram skýr samningsmarkmið um aukin framlög til byggða- og dreifbýlismála til að aðstoða fólk og fyrirtæki til að takast á við óhjákvæmilega þróun. Við eigum að setja fram skýr markmið um um aukin framlög til starfsmenntamála til að hraða nauðsynlegri fræðslu og menntun þeirra sem minnsta menntun hafa. Við eigum að setja fram markmið um hlutverk ESB í uppbyggingu samgöngumannvirkja til að tengja saman byggðir og auka hreyfanleika milli svæða.
Við eigum einfaldlega að nota aðild að Evrópusambandinu sem það ankeri sem við þurfum til þess að draga okkur upp úr þeim hjólförum sem við erum í. Reynslan sýnir okkur að þessi för geta ekki leitt okkur annað en á braut ófremdarástands sem leysir ekki úr þeim vanda sem við er að glíma og það er trúverðug framtíð fyrir börnin okkar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
