Krefja ráðherra um sundurliðaðar upplýsingar um laun bankastjóra og skilanefndarmanna
Tólf þingmenn úr öllum flokkum með Árna Þór Sigurðsson, Vinstri grænum, í broddi fylkingar vilja að efnahags- og viðskiptaráðherra gefi Alþingi skýrslu um mánaðarlegar launagreiðslur til bankastjóra, skilanefndarmanna og bankaráðsmanna í landinu og hvernig þær hafi þróast frá árinu 2005.
Einnig verði greint frá því hvernig laun bankastjóra, skilanefnda og bankaráðsmanna eru ákveðin.
Alþingi samþykkti þessa skýrslubeiðni þingmannanna í maí á þessu ári og bar að skila skýrslunni innan tíu vikna frá þeim tíma samkvæmt þingskaparlögum. Það tókst þó ekki og segja flutningsmennirnir að þeir endurflytji málið þar sem þess er að vænta að talsverð vinna hafi nú þegar verið lögð í skýrslugerðina af hálfu ráðuneytisins og rétt sé því að gefa ráðherra kost á að senda Alþingi skýrsluna.
Spurningarnir sem þingmennirnir vilja fá svar við eru þessar:
1. Hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til hvers af æðstu stjórnendum (bankastjóra og bankaráðsmanna) Glitnis, Kaupþings og Landsbanka Íslands árin 2005–2008?
2. Hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til hvers af æðstu stjórnendum (bankastjóra og bankaráðsmanna) Arion banka, Íslandsbanka og Nýja Landsbankans 2009–2011 (júlíloka)?
3. Hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til hvers skilanefndarmanns og slitastjórnarmanns Glitnis, Kaupþings og Landsbanka Íslands frá því að þessar nefndir/stjórnir voru settar á laggirnar til júlíloka 2011?
4. Hvernig eru laun bankastjóra, bankaráða, skilanefnda og slitastjórna ákveðin?
Óskað er eftir sundurliðun á hvern mánuð fyrir umrædd tímabil svo að launabreytingar og tímasetningar þeirra komi fram.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is