Fimmtudagur 13.10.2011 - 15:17 - Ummæli ()

Styrmir Bragason: Sýkna frá héraðsdómi, rak MP þar sem stjórn fékk allt eigið fé lánað. Nú ráðinn til Straums

Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi bankastjóri MP banka, sem sýknaður var af héraðsdómi í Exeter-málinu, hefur verið ráðinn til starfa hjá Straumi fjárfestingabanka sem forstöðumaður markaðsviðskipta.

Styrmir, sem var bankastjóri MP banka frá 2006 til 2009, var einn þriggja sem sérstakur saksóknari ákærði í Exeter-málinu svokallaða en þremenningarnir voru sýknaðir með dómi Héraðsdóms í júní á þessu ári.

Einn þriggja dómara vildi sakfella hina sakborningana tvo, Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóra Byrs og Jón Þorstein Jónsson, fyrrverandi stjórnarformann Byrs, fyrir umboðssvik en gerði ekki ágreining við sýknu Styrmis, sem var sakaður um hlutdeild í meintum brotum þeirra tveggja, sem voru fólgin í því að að hafa lánað Exeter Holding bréf til kaupa í Byr sparisjóði á yfirverði af MP-banka.

Exeter-málinu hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar og Vilhjálmur Bjarnason lektor hefur látið hafa eftir sér að staðfesti Hæstiréttur dóminn geti sérstakur saksóknari hætt starfsemi.

Einnig upplýsti RÚV í ágúst á þessu ári að Styrmir hefði í byrjun október 2008 bjargað MP-banka frá gjaldþroti á sínum tíma með sölu veðsettra hlutabréfa í Landsbankanum en söluandvirðið var fært til bókar sem hagnaður. Ekki var greidd króna af láninu til baka.

Þetta kom fram í vitnisburði Styrmis í tengslum við Exetermálið en ekki var þar ákært vegna viðskiptanna, sem var lýst með þessum hætti í frétt Eyjunnar:

Fléttan er á þá leið að Byr sparisjóður veitti einkahlutafélagi í eigu Björgólfs Guðmundssonar lán árið 2006 en sjóðurinn og MP banki gerðu með sér sérstakan aðildarsamning vegna lánsins þar sem MP banki eignaðist 40 prósent í lánasamningnum. Veð fyrir láninu voru hlutabréf í Straumi-Burðarási og Landsbankanum.

Seldi MP banki hluta hinna veðsettu bréfa í Landsbankanum fyrir hálfan milljarða króna í byrjun október 2008 um sama leyti og bankahrunið reið yfir. Hélt bankinn hélt eftir öllu söluandvirðinu og þar af rúmum þrjú hundruð milljónum króna sem greiða átti Byr samkvæmt aðildarsamningnum og staðfest er fyrir dómi.

Ekkert var þó greitt Byr heldur voru milljónirnar 500 bókfærðar sem hagnaður MP banka. Bar Styrmir fyrir dómi að hann einn hefði tekið þá ákvörðun án samráðs við stjórnendur Byrs.Vildi Styrmir þó ekki meina að greiða hefði andvirðið upp í lánið.

Þá hefur Fjármálaeftirlitið sektað EA eignarhaldsfélag, sem stofnað var til að halda utan um leifar MP banka eftir að rekstur hans var seldur Skúla Mogensen og fleirum, um fimmtán milljónir króna fyrir að hafa lánað fjórum stjórnarmönnum bankans 6,3 milljarða króna sem svaraði til 126,34% af eiginfjárgrunni bankans. Áhættuskuldbindingar af þessu tagi máttu mest vera 25% af eiginfjárgrunni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is