Mánudagur 17.10.2011 - 20:52 - Ummæli ()

Barþjónn: Óli Palli lét eins og hann væri eini maðurinn í heiminum. Ruddalegur með útblásið egó

Wiktoria barþjónn á Ölstofunni svarar Ólafi Páli Gunnarssyni sem fór ósáttur og þyrstur af barnum eftir að hafa verið neitað um þjónustu.

„Ég man mjög vel eftir þessum manni. Hann stóð við barinn, augljóslega undir áhrifum áfengis, og hrópaði á okkur óþolinmóður,“ segir Wiktoria Joanna Ginter, barþjónn á Ölstofu Kormáks og Skjaldar, í bréfi sem hún hefur beðið Eyjuna að birta. „Hann lét eins og hann væri eini maðurinn í heiminum.“

Bréf Wiktoriu er viðbrögð við lýsingu Ólafs Páls Gunnarssonar útvarpsmanns, sem Eyjan sagði frá í gær, en hann kvartaði undan því í pistli að hafa ekki fengið afgreiðslu á Ölstofunni á laugardagskvöld.

Wiktoria segist hafa unnið sem barþjónn á Ölstofunni á fjórða ár. „Á þeim níu árum sem barinn hefur verið í rekstri höfum við eignast marga góða og virðulega viðskiptavini. Það gerðist ekki bara af því að eigendurnir eru frábærar manneskjur, heldur líka vegna þeirrar stefnu sem barinn hefur fylgt.

Við komum eins fram við alla. Það skiptir okkur engu máli hver þú ert. Þú gætir verið forseti Bandaríkjanna, okkur er alveg sama. Á meðan fólk kemur vel fram og kann sig, þá erum við kurteis líka.

Ég man mjög vel eftir þessum manni. Hann stóð við barinn, augljóslega undir áhrifum áfengis og hrópaði á okkur óþolinmóður.

Þeir sem hafa komið á Ölstofuna á laugardagskvöldi vita hvernig stemmningin er: Það er mjög mikið að gera. Og það er margt fólk sem bíður eftir afgreiðslu.

Og þessi tiltekni maður lét í fyrsta lagi eins og enginn væri til í heiminum nema hann. Í öðru lagi: Hann sagði aldrei hversu stóran bjór hann vildi. Hann nefndi bara tegundina (og það þýðir að við byrjum að láta renna í stórt glas úr krananum). Ef hann vildi lítinn bjór, þá gat hann stoppað mig, en hann gerði það ekki. Hann neitaði bara að borga fyrir hann og sagði að þetta væri ekki bjórinn sem hann vildi. „Ég les ekki hugsanir,“ sagði ég og neitaði að afgreiða hann. Eftir smástund reyndi hann að fá afgreiðslu hjá samstarfskonu minni, en hann var mjög ruddalegur svo að hún neitaði líka að afgreiða hann.

Þá sprakk hans særða egó og hann hrópaði á okkur að hann þekkti eigendurna. „Já, eins og allir aðrir,“ svaraði ég.

Hann kallar sig Popplandskonung, en það er ekkert konunglegt eða göfugt við svona framkomu.

Að belgja sig út, uppfullur af sjálfum sér, á veitingastað og láta svo niðrandi ummæli falla opinberlega um „erlent“ fólk sem reynir að sinna starfi sínu – það er bara ömurlegt.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is