Mánudagur 17.10.2011 - 19:42 - Ummæli ()

Nær allir þingmenn VG leggja fram tillögu á Alþingi um þjóðaratkvæði vegna aðildar Íslands að NATÓ

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, hefur lagt fram á Alþingi tillögu um að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu fari fram í síðasta lagi um mitt ár 2012.

Með Guðfríði Lilju flytja tillöguna allir þingmennog ráðherrar VG aðrir en Steingrímur J. Sigfússon og Jón Bjarnason og einnig Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Atkvæðagreiðslan fari fram eigi síðar en um mitt ár 2012,“ segir í tillögunni en í greinargerð segir að markmiðið sé „að kalla fram afstöðu þjóðarinnar til úrsagnar eða áframhaldandi veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu.“

Síðan segir:

Útrás Atlantshafsbandalagsins og forysturíkja þess hefur á undanförnum árum sett þau í fremstu víglínu átaka í Írak, Afganistan og nú síðast Líbíu. Hvorki sér fyrir endann á þessum átökum né þessari útrás. Nauðsynlegt er að staldra við og gefa landsmönnum færi á að svara þeirri spurningu hvort þeir telji rétt að Ísland eigi aðild að slíkum hernaðaraðgerðum.
Um aðgerðagetu Íslands í hernaðarátökum í fjarlægum löndum og áhrifamátt innan Atlantshafsbandalagsins er ef til vill óþarfi að fjölyrða en mikil þörf er á opinni og lýðræðislegri umræðu um samflot Íslands í fyrrnefndum hernaðaraðgerðum. Þjóðin hafði ástæðu til að efast um réttmæti þess að Ísland gerðist aðili að Atlantshafsbandalaginu fyrir rúmum 60 árum en var ekki gefið færi á að móta heildstæða afstöðu til ákvörðunarinnar. Nú er fullt tilefni til að gefa þjóðinni nýtt tækifæri til að segja hug sinn um þróun bandalagsins og áframhaldandi þátttöku Íslands innan þess.

[...]

Það væri rökréttur hluti af mótun þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland að þjóðinni yrði gefinn kostur á að taka afstöðu til aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu á meðan málið er enn til afgreiðslu hjá Alþingi. Yfirlýst markmið af því þverpólitíska starfi sem er framundan er m.a. að skapa sátt um framtíðarstefnu Íslands í öryggismálum. Sú sátt verður best tryggð með beinni aðkomu þjóðarinnar að helstu álitamálum svo úr því fáist skorið með lýðræðislegum hætti hvert leggja beri leið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is