Þriðjudagur 18.10.2011 - 14:58 - Ummæli ()

Fleiri áhorfendur komast á Biophiliu Bjarkar í Hörpu

Björk Guðmundsdóttir þykir fara á kostum á Biophiliu-tónleikunum. Fimm tónleikar eru eftir í Hörpu næstu daga en vegna breytinga á uppsetningu sviðsins er búið að fjölga plássum fyrir áhorfendur.

Eftir tvo fyrstu Biophiliu-tónleika Bjarkar í Hörpu hefur verið ákveðið að selja fleiri miða á þá tónleika sem eftir er en áður stóð til, segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves.

„Við sáum það ekki fyrr en eftir fyrstu tónleikana hversu margir gætu verið þarna inni,“ segir Grímur.  “Það var aðeins rýmra um fólk en við héldum. Við erum bara að tala um 30 til 40 miða á hvert gigg.“

Miðarnir sem áður voru settir í sölu seldust upp á örskömmum tíma. Vegna breytinganna nú eru til miðar á tónleikana 19., 25., 28. og 31. október og 3. nóvember og eru þeir til sölu á midi.is og harpa.is

Björk hefur verið á ferð með Biophiliu frá því seinni part sumars þegar hún hélt fyrstu tónleika sína á þessari ferð í Manchester. Hún heldur amk sex tónleika í hverri borg og hafa þeir valdið gríðarlega athygli enda er gríðarlega mikið lagt í alla sviðsetningu, Björk hefur látið sérsmíða einstök hljóðfæri fyrir tónleikana og David Attenborough kynnir lögin af segulbandi.

Gagnrýnendur víða um lönd hafa farið hástemmdum orðum um þá upplifun sem það er að sjá Biophiliu Bjarkar, síðast David Fricke, ritstjóri tímaritsins Rolling Stone, sem var viðstaddur fyrstu tónleikana í Hörpu á dögnum og fór um þá gríðarlega lofsamlegum orðum í grein á vef tímaritsins:

„Biophilia er plata sem maður verður bæði að sjá og heyra,“ segir Fricke.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is