Þriðjudagur 18.10.2011 - 08:56 - Ummæli ()

Erlendur sérfræðingur telur farsælast að Karl biskup víki og hleypi nýjum leiðtoga að

Erlendur sérfræðingur telur best fara á að leiðtogar kirkjunnar sem ekki njóta trausts víki frá fyrir nýju fólki sem endurvakið getur traustið

Erlendur sérfræðingur í kynferðisbrotum innan trúfélaga er þeirrar skoðunar að biskup Íslands geri sennilega best með því að víkja úr embætti. Aðeins með þeim hætti geti nýr leiðtogi unnið traust fólksins til baka.

Dr. Marie M. Fortune er stödd hér á landi til að taka þátt í málþingi og jafnframt halda námskeið fyrir kirkjunnar fólk um rétt viðbrögð vegna kynferðisbrota innan trúfélaga en Fortune þykir einn mesti sérfræðingur heims í þeim málum.

Aðspurð í Fréttablaðinu um stöðu Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, eftir það sem á undan er gengið segir Fortune að hennar mat sé að farsællegast sé fyrir leiðtoga kirkjunnar sem ekki nýtur lengur trausts fólksins að stíga til hliðar. Öðruvísi sé erfitt að endurvekja nauðsynlegt traust fólksins á kirkjunni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is