Leikhús fáránleikans segir Jón Steinsson. Páll Magnússon alls óhæfur sem forstjóri Bankasýslu

Páll Magnússon er eins pólitískur og hugsast getur að sögn Jóns Steinssonar sem segir þyngra en tárum taki að enginn virðist hafa lært af mistökum fyrri ára heimavið
„Páll Magnússon er jafn óhæfur til þess að vera forstjóri Bankasýslunnar og hann er óhæfur til þess að vera dómari við Hæstarétt,“ skrifar Jón Steinsson, hagfræðingur við Columbia háskóla í Bandaríkjunum, sem er gáttaður á ráðningu Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins. Segir Jón auðséð að enn sé engin virðing borin fyrir menntun eða reynslu við ráðningar í lykilstöður hjá ríkinu.
Skrifar Jón harðorðan pistil í Fréttablaðið um ráðningu Páls sem er afar umdeild eins og Eyjan hefur ítrekað greint frá. Telur Jón líkindi með ráðningu Páls í starf forstjóra Bankasýslu og þegar einstaklingar með takmarkaða menntun eða þekkingu sátu í lykilstöðum fjármála á árunum fyrir hrunið. Enginn virðist hafa haft fyrir að læra af mistökum fyrri ára.
Við þekkjum afleiðingarnar. Og maður hefði haldið að það gerði það að verkum að viðhorf hefðu breyst.
Nú er hins vegar Páll Magnússon ráðinn til þess að stýra Bankasýslu ríkisins þrátt fyrir að hafa enga menntun né sérþekkingu á sviði banka- og fjármálastarfsemi þótt lög um Bankasýslu kveði á um að forstjóri stofnunarinnar skuli hafa þá eiginleika. Páll var tekinn fram yfir þrjá aðra umsækjendur – sem allir hafa víðtæka reynslu af banka- og fjármálastarfsemi.
Stjórn Bankasýslunnar rökstyður ráðninguna með vísun í að valdir umsækjendur hafi verið látnir taka persónuleikaprófið OPQ32, huglægt getupróf, raunhæft verkefni, stærðfræðipróf og ítarleg viðtöl og að Páll hafi staðið sig best eða næstbest á sumum af þessum prófum en verr í öðrum. Í fyrstu veit maður ekki hvort maður á að hlæja eða gráta. En síðan byrjar maður fljótlega að gráta. Þetta er leikhús fáránleikans. Ferli af þessu tagi veitir stjórninni nánast ótakmarkað frelsi til þess að velja hvern sem henni þóknast. Hún þarf einungis að ákveða eftir á að þeir mælikvarðar sem viðkomandi umsækjandi stóð sig vel á vegi þyngra en hinir.
Reynum að setja þetta í samhengi. Nú fyrir nokkrum dögum var nýr dómari skipaður við Hæstarétt. Hvernig fyndist mönnum ef Páll Magnússon hefði verið skipaður í þá stöðu með svipuðum rökstuðningi? Ha, er það allt annað mál? Einungis ef menn bera litla sem enga virðingu fyrir menntun, reynslu og sérþekkingu í banka- og fjármálum en mun meiri virðingu fyrir menntun, reynslu og sérþekkingu í lögfræði. Einhverra hluta vegna virðist það vera landlægt á Íslandi. Páll Magnússon er jafn óhæfur til þess að vera forstjóri Bankasýslunnar og hann er óhæfur til þess að vera dómari við Hæstarétt. Og mitt mat er að meiri hætta skapist fyrir samfélagið við það að hafa hann forstjóra Bankasýslunnar en dómara við Hæstarétt (þar sem hann hefði þó meðdómara með sér).
Bankasýslan fer með eignarhlut ríkisins í Landsbankanum og fjölda annarra banka og sparisjóða. Hún á að sjá til þess að stjórnendur þessara banka fari eftir eigendastefnu ríkisins – þ.e. vaka yfir stjórnendum bankanna og gæta hagsmuna ríkisins. Hefur reynsla okkar síðustu ár ekki kennt okkur hversu auðvelt það er að afvegaleiða reynslu- og skilningsrýra eftirlitsaðila þegar bankar eru annars vegar? Og hefur reynsla okkar ekki einnig kennt okkur að slíkt getur verið okkur ansi dýrt? Hvernig má þá vera að flestir yppi öxlum við þessa ráðningu?
Bankasýslan á einnig að „undirbúa og vinna tillögur um sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum“. Nánast öll sín fullorðinsár hefur Páll starfað í umboði fyrir Framsóknarflokkinn. Hann er eins hápólitískur og hugsast getur. Það sem meira er, skuggalega margir vinir og vandamenn formanna og varaformanna Framsóknarflokksins hafa einhverra hluta vegna auðgast verulega af viðskiptum sem tengdust sölu eða úthlutun á ríkis- og þjóðareignum. Getur verið að við séum að leika okkur með eld með því að ráða Pál Magnússon til þess að „vinna tillögur um sölu eignarhluta ríkisins“ í Landsbankanum?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is