Föstudagur 21.10.2011 - 14:56 - Ummæli ()

Blaðamaður ræðst á þekktan mótmælanda: Gerðu okkur greiða og dreptu þig

„Alma Jenný, þú ert eitt mesta idjót sem gengur laust á Facebook. Nennirðu ekki að gera okkur öllum greiða og taka inn eitur?“

Þannig ávarpaði Þórarinn Þórarinsson blaðamaður á Fréttatímanum Ölmu Jennýju Guðmundsdóttur á facebook í gærkvöldi. Alma Jenný er kunn fyrir þátttöku sína í margs konar mótmælum allt frá bankahruni, nú síðast við Bankasýslu ríkisins. Þórarinn hélt áfram:

„Alma, er ekki gasofn heima hjá þér, eða feitur þakbiti? Ekki láta neitt stoppa þig. Framtíð heillar þjóðar er í húfi. En ef þú beilar hættu þá amk að hlusta á Útvarp Sögu og trúa öllu sem þú heyrir. Þú ert í alvöru clinically insane! Og þó. Eða bara plein end simpúl ídjót. Kemur niður á sama stað. Just do it!“

Þessi ummæli lét Þórarinn falla á facebook-vegg Sigmars Guðmundssonar sjónvarpsmanns fyrir augum um 3.600 facebook-vina hans. Sigmar hefur nú fjarlægt öll ummælin.

Alma Jenný bregst við með þessum hætti: „Veit ekki til þess að við séum vinir hér svo ég gæti varla hafa truflað þig hér – en mér er vægast sagt farið að líða illa að lesa orð þín hér.“ Og hún bætir við: „Reyndar mjög illa…“

Þórarinn hélt áfram á þessa leið: „Ó, sorrí. Samt klassískt comeback frá besserwisser sem gæti ekki fundið á sér rassgatið í björtu með báðum höndum. Kannastu við týpuna? Moron!“

„Ég vona að barn mitt lesi ekki þessi orð þín,“ svaraði Alma Jenný og uppskar þessi viðbrögð Þórarins:

„OMG! [Oh my god] Áttu barn? Og hikar samt ekki við að gera þig að fífli alla daga opinberlega? Hefur enginn gert barninu greiða og haft samband við yfirvöld?“

Alma tilkynnti Sigmari þá að hún sæi eftir að hafa tekið þátt í samræðum á facebook-vegg hans. „Harma þessa umræðu,“ skrifaði hún.

Þetta voru þá lokaorð Þórarins: „Ertu að djóka? Kálhausinn biðst forláts á umræðu sem hverfist um geðveiki hans. Vona að það sé ekki búið að skera svo mikið niður í heilbrigðiskerfinu að það sé ekki rúm fyrir þig amk á Kleppi. P.S. Stay out of the kitchen, það er svo heitt þar. En þú getur alltaf stofnað enn ein samtök lúsera. Eða er kannski kvóti? You idiot!“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is