Hæstiréttur staðfestir neyðarlögin. Jón Steinar á móti. Greiðslur úr þrotabúi Landsbanka geta hafist
Hæstiréttur staðfesti í dag stjórnskipulegt gildi neyðarlaganna þegar kveðnir voru upp dómar þess efnis að erlend innlán hjá Landsbankanum skyldu teljast til forgangskrafna í þrotabú Landsbankans.
Þar með geta greiðslur krafna úr þrotabúinu hafist.
Einn hæstaréttardómari, Jón Steinar Gunnlaugsson, skilaði séráliti og var andvígur niðurstöðu annarra dómara. Dómarnir, sem eru ellefu talsins og hafa að geyma rökstuðning Hæstaréttar hafa enn ekki verið birtir á vef Hæsaréttar.
Yfirlýsing forsætisráðuneytisins vegna dómsins er svohljóðandi:
Með dómum Hæstaréttar, sem gengu í dag, er forgangur innstæðna við skipti á búum gömlu bankanna staðfestur, líkt og neyðarlögin frá því í október 2008 mæltu fyrir um. Ríkisstjórnin fagnar þessari niðurstöðu. Með henni hefur óvissu um mikilvægt grundvallaratriði verið eytt.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í yfirlýsingu í tilefni af dómi Hæstaréttar að ljóst sé að ekki verði bornar frekari brigður á gildi neyðarlaganna fyrir dómstólum hér á landi; lögin hafi sannað gildi sitt og hafi verið nefnd sem dæmi um góða ráðsmennsku stjórnvalda þegar mikið lá við að bregðast rétt við.
Yfirlýsing Bjarna fer hér á eftir:
Hæstiréttur Íslands hefur nú staðfest að neyðarlögin, sem sett voru til að tryggja stöðu innistæðueigenda á Íslandi, standast stjórnarskrá.
Lögin voru sett þegar mikið reið á að bregðast hratt og örugglega við til að takmarka tjón vegna falls bankanna. Fyrir lögunum mælti þáverandi forsætisáðherra Geir H. Haarde.
Lögin hafa þegar sannað gildi sitt og hafa viðbrögð íslenskra stjórnvalda á þessum upphafsdögum verið nefnd sem dæmi um góða ráðsmennsku, þar sem tjón vegna bankanna var takmarkað og byrðinni ekki velt yfir á skattgreiðendur. Nú er ljóst að ekki verða bornar frekari brigður á lögmæti neyðarlaganna fyrir dómstólum hér á landi.
Þá er rétt að minna á að ólokið er landsdómsmáli því er meirihluti Alþingis studdi, gegn Geir H. Haarde, forsætisráðherranum sem fór fyrir setningu neyðarlaganna. Einnig er rétt að minna á að núverandi fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, sá sér ekki fært að styðja þau, né aðrir þingmenn vinstri grænna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is