Föstudagur 28.10.2011 - 22:47 - Ummæli ()

Óhreint fé í umferð hér? „Get ekki sagt meira,“ segir Þorvaldur Gylfason

Þorvaldur Gylfason lætur ekki uppi hver viðmælandi hans var í Hörpu.

Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands segir frá því að facebook-síðu sinni í dag, að ónafngreindur fyrrverandi seðlabankastjóri telji „mikið af óhreinu fé“ í umferð á Íslandi. Þetta hafi komið fram í samtali þeirra tveggja í Hörpu í gær.

Færsla Þorvaldar er svona:

„Fyrrverandi seðlabankastjóri sagði við mig í gær, að ein ástæðan til þess, að bankarnir starfa undir leyndarhjúp frekar en fyrir opnum tjöldum, sé sú, að mikið sé af óhreinu fé í umferð. Hann var að tala um Ísland. Mig langaði að segja við manninn: Hvers vegna ertu að hvísla þessu að mér? Hvers vegna skrifarðu ekki um þetta í blöðin?“

Með fylgdi sú skýring að í þeim svifum hafi þriðji maður komið aðvífandi og því hafi þeir tveir fellt talið.

Af þessu tilefni beindi Eyjan svohljóðandi spurningum til Þorvaldar fyrr í kvöld:

„Geturðu upplýst lesendur Eyjunnar um hvaða fyrrverandi seðlabankastjóri þetta var? Útskýrði hann hvað átt var við með „óhreint fé?“ Hvaða skilning lagðir þú í orð hans?“

Svar Þorvaldar var stutt: „Get ekki sagt meira.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is