Alþingi geri heimspeki að skyldufagi í grunnskólum og framhaldsskólum landsins
Heimspeki verður skyldufag í grunnskóla og framhaldsskóla hér á landi innan fjögurra ára nái tillaga Þórs Saari, Birgittu Jónsdóttur úr Hreyfingunni og sex annarra þingmanna fram að ganga.
Málið verður tekið til umræðu á Alþingi í dag.
„Með því að auka kennslu í heimspeki í grunn- og framhaldsskólum er lagður grundvöllur að því að styrkja skilyrði siðferðilegrar rökræðu meðal framtíðarborgara landsins á sama tíma og lýðræðislegir innviðir samfélagsins eru treystir,“ segja flutningsmennirnir.
Þór Saari er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar, sem hljóðar svo:
Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að endurskoða aðalnámskrár grunnskóla og framhaldsskóla með það að markmiði að heimspeki verði skyldufag á báðum skólastigum innan fjögurra ára.
Í greinargerð segir að markmið tillögunnar sé að efla kennslu í heimspeki.
Kenndur verði „að meðaltali einn áfangi á hverjum tveimur árum á grunnskólastigi og að meðaltali einn áfangi á hverju skólaári á framhaldsskólastigi.“
Vísað er í siðferðishluta skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis þar sem lagt er til að heimspeki verði skyldufag í grunn og framhaldsskólum.
Síðan segir:
Eins og fram kemur í skýrslu þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er nauðsynlegt að efla siðfræðilega menntun allra fagstétta á Íslandi og umræðu um gildi siðareglna.
Heimspeki og siðfræði ættu að vera skyldufag á öllum skólastigum og þarf að ýta undir þróun í kennslu og námsgagnagerð á því sviði.
Mikilvægt er að styrkja ábyrgðarkennd nemenda gagnvart samfélaginu og stuðla jafnframt að gagnrýninni hugsun, sem er ein meginforsenda þess að borgarar geti verið virkir þátttakendur í lýðræðissamfélagi.
Með því að auka kennslu í heimspeki í grunn- og framhaldsskólum er lagður grundvöllur að því að styrkja skilyrði siðferðilegrar rökræðu meðal framtíðarborgara landsins á sama tíma og lýðræðislegir innviðir samfélagsins eru treystir.
Þar sem um allnokkra breytingu á aðalnámskrám er að ræða er talið æskilegt að gefa ráðherra allt að fjórum árum til að innleiða breytinguna.
Auk Þórs og Birgittu flytja málið þingmennirnir Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson og Davíð Stefánsson, úr VG; Ólína Þorvarðardóttir og
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Samfylkingunni, og Lilja Mósesdóttir, utan flokka.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
