Miðvikudagur 02.11.2011 - 15:30 - Ummæli ()

Jón Bjarnason láti af andstöðu svo hægt verði að nýta velvilja Dana við stærstu hagsmunamál þjóðarinnar

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hvatti Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, til þess á Alþingi í dag að láta af andstöðu sinni við framgang aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins.

Hann vill að Jón hraði sem mest hann má nauðsynlegri vinnu svo að hægt verði að opna tvo erfiðustu kaflana í viðræðunum meðan Danir gegna formennsku í stofnunum Evrópusambandsins frá og með næstu áramótum.

Björgvin fagnaði fréttum af því að ný ríkisstjórn Danmerkur hefði í sínum stjónarsáttmála ákvæði um að styðja við umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og sagði sérstakt ánægjuefni að danska ríkisstjórnin
kæmi með svo myndarlegum hætti til móts við stærsta hagsmunamál Íslendinga.

Þrjú mál vegi langþyngst í viðræðunum, sjávarútvegsmál, landbúnaðarmál og peningamál.

Mikilvægt sé nú að hraða gangi aðildarviðræðnanna eins og kostur er og nýta velvild Dana, sem taka við formennsku hjá ESB um áramót, til þess að ljúka viðræðunum á kjörtímabilinu. Opna þurfi erfiðustu kaflana í viðræðunum meðan formennska Dana stendur yfir.

„En þá skiptir máli að hæstvirtur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra láti af andstöðu sinni þar sem hann fer með langerfiðustu og fyrirferðamestu kaflana, sem mikilvægt er að opna núna,“ sagði Björgvin. Hann sagðist vilja hvetja Jón Bjarnason „til að hraða vinnunni í þessum tveimur körflum, sem bera með sér mestu hagsmuni Íslendinga í bráð og lengd.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is