Móðir og systkini Guðrúnar Ebbu: Lýsing á heimilislífinu er röng. Vilja umræðu um bældar minningar

„Fyrst og fremst þá inniheldur frásögn Guðrúnar Ebbu lýsingar á heimilislífi og atburðum sem ekkert okkar þriggja kannast við," segja móðir Guðrúnar Ebbu og systkini í yfirlýsingu.
„Lýsing hennar á heimilislífi okkar er röng. Heimilið okkar einkenndist ekki af kúgun af hálfu föður okkar og eiginmanns Ólafs Skúlasonar,“ segja systkini og móðir Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, í yfirlýsingu sem þau hafa sent frá sér.
Þau segjast ekkert kannast við þær lýsingar á heimilislífi sem fram koma í bók Guðrúnar Ebbu og hvetja til ítarlegrar og faglegrar umræðu um bældar minningar eins og þær sem liggi frásögn hennar til grundvallar.
Eins og kunnugt er komin út bókin Ekki líta undan eftir Elínu Hirst þar sem Guðrún Ebba fjallar um kynferðisofbeldi sem faðir hennar, Ólafur heitinn Skúlason, biskup Íslands, hafi beitt hana árum saman.
Yfirlýsingin fer hér á eftir:
Við undirrituð, systkin og móðir Guðrúnar Ebbu, gerum alvarlegar athugasemdir við frásögn hennar í nýútkominni bók og viðtölum við fjölmiðla. Í upphafi bókarinnar segist hún ekki tilheyra lengur fjölskyldunni. Það var alfarið hennar ákvörðun og ekki í samræmi við vilja okkar.
Lýsing hennar á heimilislífi okkar er röng. Heimilið okkar einkenndist ekki af kúgun af hálfu föður okkar og eiginmanns Ólafs Skúlasonar.
Mál þetta hefur verið okkur og fjölskyldu okkar afar þungbært. Fram til þessa höfum við haldið okkur til hlés í þessari umræðu í þeirri von að henni myndi linna fyrr en síðar. Nú er svo komið að við getum ekki lengur orða bundist. Við vörum við einhliða málflutningi og þöggun í þessu viðkvæma máli.
Við hvetjum til þess að fram fari heiðarleg og fagleg umræða um bældar minningar af þeim toga sem Guðrún Ebba segir liggja til grundvallar ásökunum sínum. Við teljum það siðferðilega skyldu okkar að standa vörð um þá sem ekki geta varið sig sjálfir og leiðrétta rangfærslur er okkur varða. Fyrst og fremst þá inniheldur frásögn Guðrúnar Ebbu lýsingar á heimilislífi og atburðum sem ekkert okkar þriggja kannast við.
Ebba Sigurðardóttir, Sigríður Ólafsdóttir og Skúli S. Ólafsson
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is