Tveir úraræningjanna handteknir í Póllandi: Sleppt og verða ekki framseldir
Tveir Pólverjanna sem eru grunaðir um aðild að vopnuðu ráni í úraverslun Michelsen á Laugavegi þann 17. október voru handteknir í Póllandi en sleppt á ný þar sem ekki er í gildi framsalssamningur milli Íslands og Póllands.
Mennirnir ganga því lausir í heimalandi sínu.
Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Þrír Pólverjar á fertugsaldri, grunaðir um ránið, komust úr landinu með flugi en voru eftirlýstir af alþjóðalögreglunni. Þeir heita heita Grzegorz Marcin Novak, Pawel Jerzy Podburaczynski og Pawel Artur Tyminski og eru allir á fertugsaldri.
Mennirnir stálu um 40 Rolex-úrum sem voru talin að minnsta kosti 50 milljóna króna virði. Grunaður vitorðsmaður þeirra er í gæsluvarðhaldi til 10. nóvember en þýfið fannst falið í bíl sem talið er að hann hafi ætlað að koma úr landi með Norrænu.
Í kvöldfréttum RÚV kom fram að tveir mannanna þriggja, sem komust undan, hefðu verið handteknir í Póllandi í síðustu viku. Þar sem ekki var í gildi alþjóðasamningur um framsal þeirra voru þeir látnir lausir.
Smári Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra, sagði að mennirnir mundu ekki fást framseldir frá heimalandi sínu, fremur en Íslendingar sem væru í sömu sporum hér á landi.
Fari þeir hins vegar til útlanda á ný og lendi í höndum lögreglu í þriðja landi verði hugsanlegt hægt að fá þá framselda.
Hvað varðar framhald málsins kemur tvennt til greina, samkvæmt því sem fram kom á RÚV.
Annars vegar er unnt að fara fram á að mennirnir verði yfirheyrðir í Póllandi.
Hins vegar er hugsanlegt að íslensk lögregluyfirvöld sendi málið til Póllands með ósk um að pólsk yfirvöld yfirtaki saksóknina.
Smári Sigurðsson sagði að það væri slæmt að ná ekki að fá ræningjana framselda. Það hefði hins vegar áður gerst að íslenskir afbrotamenn hefðu sloppið undan refsingu erlendis með því að koma heim og fá þannig skjól þar sem íslensk yfirvöld framselji ekki íslenska sakamenn til útlanda.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is