Krabbameinssjúklingar þurfa að greiða allt að 200.000 kr. Kostnaður gæti nú hækkað í 370.000 kr.
Sjúklingar hafa þurft að greiða allt að 200 þúsund krónum fyrir spítalameðferð við brjóstakrabbameini.
Samkvæmt frumvarpi sem nú hefur verið lagt fram um þátttöku sjúklinga í lyfja- og endurhæfingarkostnaði gæti kostnaðurinn hækkað upp í 370.000 krónur.
Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld og var byggt á upplýsingum um kostnað þriggja sjúklinga á Landspítalanum.
Sjúklingar greiða ekki sjálfir skurðaðgerðir og geislameðferðir en greiða komugjald á krabbameinsdeild og fyrir ýmsar rannsóknir, þrátt fyrir að þeir fái afsláttarskírteini.
Sjónvarpið nefndi dæmi um konu, þar sem brjóst var tekið og nýtt byggt upp í sömu aðgerð. Hún þurfti að opna veskið sitt sextíu og einu sinni á hálfu öðru ári og greiða samtals 195 þúsund krónur fyrir læknismeðferð.
Að auki gæti hún þurft að greiða rúmlega 100 þúsund krónur til viðbótar vegna sjúkarþjálfunar og meðferð hjá sálfræðingu, að mati Krabbameinsfélagið.
Verði frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi að lögum þurfa krabbameinssjúkir að auki að greiða fyrir lyf upp á 65.000 krónur á hverju ári.
Miðað við það gæti kostnaður krabbameinssjúklings numið allt að 370 þúsund krónum.
Gunnjóna Una Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu, sagði í samtali við Sjónvarpið að fólk væri almennt ekki undir það búið að mæta svo miklum kostnaði því flestir veikist skyndilega. Þekkt séu dæmi þess að fólki dragi í lengstu lög að leita læknis og láti önnur útgjöld ganga fyrir, ekki síst þarfir barna sinna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is