Mánudagur 14.11.2011 - 19:37 - Ummæli ()

Ragnheiður Ríkharðsdóttir: Tjöldin á Austurvelli ótrúleg lítilsvirðing borgarinnar við Alþingi

„Ömurleg ásýnd Austurvallar sem sýnir ótrúlega lítilsvirðingu Reykjavíkurborgar gagnvart Alþingi Íslendinga,“ sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og einn af varaforsetum Alþingis á Facebook-síðu sinni í dag.

Hún er þar að vísa til tjaldanna, sem Occupy Reykjavík hreyfingin hefur sett upp í tengslum við mótmælaaðgerðirnar sem staðið hafa undanfarna daga.

Forsætisnefnd Alþingis hefur óskað eftir því við Reykjavíkurborg að leyfi það sem veitt var fyrir tjöldunum verði afturkallað, samkvæmt því sem segir á mbl.is.

„Að mínu mati er þetta óásættanlegt,“ segir Ragnheiður í samtali við mbl.is, en hún segir að garðyrkjustjóri borgarinnar hafi heimilað tjaldbúðirnar. Hún segir að svör hljóti að berast frá borginni á næstunni enda sé málið á könnu borgarinnar.

Ragnheiður segir á Facebook að með tjöldunum sé hún ekki aðeins að hugsa um vanvirðingu við Alþingi heldur líka Dómkirkjuna við Austurvöll.

„Þetta snýst um ásýnd Austurvallar. Alveg óháð því hver situr á þingi þá er þetta fyrir framan stofnunina Alþingi og hér er líka Dómkirkjan og þetta er bara ömurlegt,“ segir hún svo í viðtali við mbl.is

Hún segir að annars staðar í heiminum hafi Occupy-hreyfingin mótmælt fyrir utan fjármálastofnanir en ekki fyrir framan þinghúsin. „Lítur fólk svo á að þetta sé gjörningur? Og eiga þá bara hvers konar gjörningar að geta farið fram á Austurvelli og á öðrum opinberum stöðum í borginni?“ spyr Ragnheiður Ríkharðsdóttir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is