Þau fimm prósent sem mest þéna eiga tæplega 17 prósent allra eigna
Samkvæmt skattatölfræði Ríkisskattstjóra eiga þau fimm prósent landsmanna sem hvað hæstar tekjur höfðu árið 2010 alls um 16,7 prósent allra eigna heimilanna. Það jafngildir 580 milljörðum króna.
Alls námu eignir heimilanna 3.466 milljörðum króna árið 2010, samkvæmt upplýsingum frá skattstjóra þar sem eignum heimila er skipt niður eftir tekjuhópum. Upplýsingarnar byggja á skattframtölum einstaklinga og hjóna og miða við stöðu gagna strax að loknum síðustu framtalsskilum. Að baki tölunum eru 245.460 einstaklingar sem annaðhvort skila inn framtölum sem einstaklingar eða eru samskattaðir með mökum sínum.
Þau 10 prósent heimila sem eru með lægstu heildartekjurnar eiga eignir upp á 165,2 milljarða króna, eða um 4,7 prósent af öllum eignum. Langstærstur hluti þeirra eigna er fasteignir, eða 64 prósent. Tekjulægsti hópurinn á einungis um 21,8 milljarða króna í innstæðum á bankareikningum en skuldar alls um 111,5 milljarða króna. Rúmlega 40 prósent skulda þessa hóps eru vegna íbúðakaupa.
Samtals á sá 5 prósent hópur sem er með hæstu meðaltekjur landsmanna 576,3 milljarða króna. Það eru tæplega 17 prósent af öllum eignum landsmanna. Þessi hópur á hlutfallslega miklu hærri innstæður í bönkum en nokkur annar á Íslandi, eða 22,1 prósent þeirra. Innstæður þessa hóps, sem telur um tólf þúsund manns, nema 118 milljörðum króna eða um 10 milljónir á hvern þeirra að meðaltali. Þá á þetta efsta lag 42 prósent allra fasteigna sem Íslendingar eiga erlendis.
Fréttablaðið greindi frá.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
