Laugardagur 19.11.2011 - 12:09 - Ummæli ()

Sjálfstæðismenn hafna ESB. Þó nauðsyn að skoða upptöku annars gjaldmiðils

Bæði formannsefni sjálfstæðismanna eru mótfallin ESB aðild. Þó er talið eðlilegt að skoða upptöku annars gjaldmiðils að þremur árum liðnum

Samkvæmt drögum að stjórnmálaályktun 40. landsfundar Sjálfstæðisflokksins hafnar fundurinn alfarið aðild að Evrópusambandinu og telur hagsmunum lands og þjóðar best varið utan þess. Engu að síður er talin nauðsyn á að skoða upptöku annars gjaldmiðils en krónu á næstu þremur til fimm árum.

Voru drög að ályktuninni kynnt fyrir stundu en þar koma fram áherslur flokksins í næstu framtíð. Hafa ýmsir flokksmenn í aðdraganda landsfundarins varað við að flokkurinn loki dyrum á aðild og þá sérstaklega einstaklingar í atvinnulífinu. Bæði formannsefni flokksins, Bjarni Benediktsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir, eru þó á móti aðild.

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins leggur áherslu á að hagsmunum Íslands er best borgið utan Evrópusambandsins og Sjálfstæðisflokkurinn styður því ekki aðildarviðræður ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn varaði eindregið við því að sótt yrði um aðild án þess að til staðar væri víðtæk sátt og afdráttarlaust umboð þjóðarinnar ásamt skýrt mótuðum samningsmarkmiðum. Tillögu Sjálfstæðisflokksins um þjóðaratkvæða greiðslu var hafnað og nú er samningsferlið komið í ógöngur á ábyrgð ríkisstjórnarinnar.

Er þó jafnframt tiltekið í ályktuninni að nauðsynlegt sé að kanna kosti upptöku annars gjaldmiðils en krónu á næstu þremur til fimm árum. Nauðsynlegt sé að haga skipan efnahagsmála á þann veg að hægt verði að taka upp annan gjaldmiðil að þeim tíma liðnum sé talin þörf á því.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is