Þingmenn fengu hundruð þúsunda í aukagreiðslur fyrir störf við fjárlagagerð

Kristján Þór Júlíusson þáði fleiri hundruð þúsund í aukagreiðslur fyrir störf í fjárlaganefnd ofan á þingfararkaup sitt og sérstakt álag. Mynd Pressphotos.biz
Nokkrir þingmenn hafa gegnum tíðina fengið umtalsverðar aukagreiðslur fyrir formennsku eða varaformennsku í fjárlaganefnd Alþingis. Einn þeirra, Kristján Þór Júlíusson, situr enn á þingi en slíkum aukagreiðslum var hætt þegar stjórn VG og Samfylkingar tók stjórnartaumum árið 2009.
Kemur þetta fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG, og hann segir frá á bloggi sínu.
Þar bendir Björn Valur á að stöku þingmenn hafi fengið allt að tvær milljónir króna í aukagreiðslur fyrir störf í fjárlaganefnd þrátt fyrir að vera bæði á fullu þingfararkaupi og fengið sérstakt álag fyrir nefndarformennsku.
Þingmennirnir sem fengu slíkar aukagreiðslur voru Einar Oddur Kristjánsson, 1,9 milljón króna, Gunnar Svavarsson, 736 þúsund, Jón Kristjánsson, 1,6 milljón, Kristján Þór Júlíusson, 736 þúsund, Magnús Stefánsson, 530 þúsund, Ólafur Örn Haraldsson, 796 þúsund, Sigbjörn Gunnarsson, 65 þúsund, og Sturla Böðvarsson sem fékk rúma milljón í sinn vasa.
Kemur fram í svarinu að það hafi verið venja áður fyrr að verðlauna formenn og varaformenn fjárlaganefndar sérstaklega með slíkum aukagreiðslum en kjörin voru ákveðin af fjármálaráðuneytinu. Segir Björn Valur þetta sýna að þar sem var mjólkað á sínum tíma hafi verið blóðmjólkað.
Þetta hafa þeir fengið fyrir vinnu sína við fjárlagagerð sem ég hélt reyndar að væri hlutverk þeirra sem sætu í fjárlaganefnd og þá sérstaklega á herðum formanns og varaformanns. En það dugði þessum kóngum greinilega ekki. Þeir virðast hafa litið svo á hlutverk sitt að það bæri að greiða þeim sérstaklega umfram aðra þingmenn, líklega vegna mikilvægis síns og umframhæfileika á sviði ríkisfjármála. Einhverri þessara þingmanna nutu síðan enn frekari greiðslna héðan og það úr opinbera kerfinu eins og kunnugt er.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is