Björgólfur var að horfa á KR spila þegar meint kaup á verksmiðju voru staðfest

Ingimar Ingimarsson lýsti viðskiptum sínum við Björgólfsfeðga í Kastljósinu í kvöld.
Ingimar Ingimarsson, arkitekt og fyrrum eigandi gosdrykkjaverksmiðju í Pétursborg í Rússlandi, höfðaði og vann alls tíu dómsmál í Rússlandi þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor sonur hans hefðu haft af honum verksmiðjuna með ólöglegum hætti.
Þegar hann kom loks í verksmiðjuna í fylgd lögreglu og fulltrúa dómstóla í Rússlandi kom í ljós að eignir fyrirtækisins höfðu verið færðar yfir í annað félag, sem einnig var í eigu Björgólfsfeðga. Hann gat því að rússneskum lögum ekki fengið aftur eignirnar sem feðgarnir höfðu haft af honum.
Þessu og fjölmörgu öðru lýsti Ingimar í viðtali við Helga Seljan í Kastljósi í kvöld.
Þar kom m.a. fram að frumrit af kaupsamningi, sem sagður er lýsa sölu Ingimars á verksmiðjunni til Björgólfs, hefur aldrei komið fram, heldur aðeins ljósrit sem Ingimar segir falsað. Aðspurður hafi Björgólfur yngri sagt að frumritið væri á Íslandi, Björgólfur eldri að það væri í Rússlandi, en loks hafi lögmenn þeirra sagt að það hafi týnst í meðförum rússnesku lögreglunnar.
Ljósritið af kaupsamningnum er dagsett 24. mars 1995, en það var ekki fyrr en hálfu ári síðar sem Björgólfur fékk samþykki hlutafélagaskrár í Pétursborg til að halda hluthafafund og staðfesta breytingu á eignarhaldinu. Á þeim tíma var Ingimar á Íslandi vegna læknismeðferðar.
Fyrir tilviljun kom í ljós að dagsetning hluthafafundarins samkvæmt skjölum stóðst ekki, því að viðskiptafélagi Ingimars hitti Björgólf á götu í Lundúnum daginn áður en fundurinn átti að hafa verið haldinn, þar sem sá síðarnefndi var til að fara á leik KR sem spilaði gegn Everton.
Dagsetningu hluthafafundarins var þá breytt á pappírunum, en um leið varð ljóst að hluthafafundurinn – ef hann var haldinn – var ólöglegur.
Ingimar lýsti einnig mútutilraunum og hótunum sem honum hafi borist eftir að hann hóf málaferli gegn Björgólfi, svo og hlerunarbúnaði sem fundist hafi á skrifstofu viðskiptafélaga hans í Lundúnum.
Björgólfur vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu, en sagði ekkert hæft í ásökunum Ingimars.
Sjá má Kastljósviðtalið við Ingimar hér.
Á morgun kemur út bókin Sagan sem varð að segja eftir Þorfinn Ómarsson, þar sem lýst er ævi og störfum Ingimars Ingimarssonar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is