ESA kannar hvort smærri fjármálafyrirtæki hafi fengið ólögmæta aðstoð frá ríkinu árið 2009
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur tekið þá aðstoð sem íslenska ríkisstjórnin veitti fjármálafyrirtækjunum Askar Capital, Saga Capital og VBS á útmánuðum 2009.
RÚV greindi frá þessu í dag. Rannsóknin byggist á kæru frá hagsmunaaðila.
Askar Capital og VBS eru nú gjaldþrota en starfsleyfi Saga Capital hefur verið afturkallað.
Þessi fjármálafyrirtæki komust í þrot nokkru eftir bankahrunið vegna endurhverfra viðskipta með skuldabréf stóru bankanna þriggja í Seðlabanka Íslands. Þau höfðu safnað upp 52 milljarða króna halla sem ríkið yfirtók í mars og samdi um leið við fyrirtækin þrjú um að endurgreiða fjárhæðina á sjö árum með 2% vöxtum og verðbótum.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði að ríkið færi þessa leið til þess að reyna að endurheimta það fé sem það hafði tapað á endurhverfu viðskiptunum milli Seðlabankans og smærri fjármálafyrirtækjanna með skuldabréf viðskiptabankanna.
ESA er nú að hefja formlega rannsókn á því hvort þessi samningur hafi falið í sér ríkisaðstoð sem brjóti í bága við ákvæði EES samningsins. Komist stofnunin að þeirri niðurstöðu gæti ríkið þurft að krefjast endurgreiðslu og lýsa m.a. kröfu í þrotabú Askar og VBS til að endurheimta þegar veitta fyrirgreiðslu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is