Rannsóknir á Drekasvæðinu gefa jákvæðari niðurstöður en búist var við

Fyrstu niðurstöður af Drekasvæðinu gefa jákvæðari niðurstöður en menn þorðu að vona að olíu sé þar að finna í vinnanlegu magni
Samkvæmt niðurstöðum nýrra rannsókna sem gerðar voru á hafsbotninum suður af Jan Mayen og náði að hluta til inn á íslenska Drekasvæðið telja menn nú auknar vonir á að svæðið gefi olíu í vinnanlegu magni.
Fréttablaðið segir frá þessu en skýrt er frá rannsóknum þessum á vef norsku Olíumálastofnunarinnar. Kemur þar fram að umræddar rannsóknir hafi verið unnar í samvinnu við Orkustofnun hérlendis og að hluta til náð inn á Drekasvæðið.
Niðurstöður þessara rannsókna, sem fram fóru síðasta sumar, eru sagðar spennandi og fyrst og fremst vegna þess að bergið á þessum slóðum sé 260 milljón ára gamalt og í því séu setlög sem Norðmennirnir segja að gefi góðar vísbendingar um að þarna sé olíu að finna. Hafi niðurstöðurnar verið mun jákvæðari en Norðmenn sjálfir hafi búist við.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is