Meirihluti segir koma til greina að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson áfram forseta
Samkvæmt nýrri könnun gætu 53,7 prósent hugsað sér að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á nýjan leik til næstu fjögurra ára, gæfi hann kost á sér í næstu forsetakosningum.
MMR gerði könnun á þessu meðal þjóðarinnar fyrir Viðskiptablaðið.
Í ljós kemur að af þeim sem taka afstöðu er meirihluti, 53,7, sem segir koma til greina að kjósa Ólaf Ragnar til fjögurra ára enn, en forsetakosningar fara fram á næsta ári. Að sama skapi segja 46,3 prósent svarenda ekki koma til greina að kjósa Ólaf.
Fylgi við Ólaf mælist meira hjá yngstu kjósendunum en öðrum. Meðal fólks á aldrinum 18- 29 ára segja 70,8 prósent koma til greina að kjósa hann. Þá er landsbyggðarfólk líklegra til að kjósa Ólaf Ragnar en fólk á höfuðborgarsvæðinu. Fylgi hans á höfuðborgarsvæðinu mælist 48,2 prósent, en 62,1 prósent á landinu öllu.
Þá nýtur Ólafur mests stuðnings meðal stuðningsmanna Framsóknar, 85,1 prósent. Þá hefur hann 64,2 prósent fylgi meðal stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins.
Tæplega 900 tóku þátt í könnun MMR og tóku 75 prósent þeirra afstöðu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
