Mánudagur 28.11.2011 - 08:31 - Ummæli ()

Jón segir stöðu sína sterka og útvegsmál á sínu forræði. ESB umræður spili undir gagnrýni

Gagnrýni á sig og sín störf segir Jón Bjarnason litast af afstöðu sinni gagnvart Evrópusambandsaðild.

Ekkert er óeðlilegt við að fleiri ráðherrar séu kallaðir til að fara yfir frumvarp um stjórn fiskveiða, segir Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra. Hann hafnar því að pólitísk staða hans sé veik og segir afstöðu sína gagnvart ESB-aðild undirliggjandi í gagnrýni á sig og sín störf.

Jón var gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 þar sem hann var spurður um pólitíska stöðu sína í kjölfar mikillar gagnrýni bæði eigin flokksmanna og annarra á frumvarpsdrög þau sem hann hefur lagt fram um stjórn fiskveiða.

Jón sagði engum vafa undirorpið að sjávarútvegsmálin væru á forræði hans og að staða sín væri sterk bæði varðandi sjávarútvegsmálin og ekki síður gagnvart Evrópusambandsviðræðunum. Þar sé hann á móti aðlögun eins og flokkur hans og þjóðin öll, eins og Jón komst að orði.

Jón sagði að frumvarpsdrög þau sem hann hefði kynnt fyrir ríkisstjórninni væru ekki fullburða frumvarp heldur eingöngu tillögur og ekki yrði farið fram með þau sem stjórnarfrumvarp.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is