Hagar keyptu í 365 miðlum í kjölfar hrunsins. Seldu Jóni Ásgeiri og tengdum aðilum með tapi

Verslunarfyrirtækið Hagar keypti stóran hlut í fjölmiðlafyrirtækinu 365 miðlum skömmu eftir bankahrunið. Jón Ásgeir Jóhannesson var þá eigandi beggja fyrirtækja.
Verslunarfyrirtækið Hagar keypti hlut í fjölmiðlafyrirtækinu 365 miðlar fyrir 810 milljónir króna einum mánuði eftir bankahrunið. Fyrirtækið seldi helming þess hlutar fljótlega aftur til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og afganginn á undirverði til aðila sem voru fjárhagslega tengdir Jóni Ásgeiri. Tap Haga vegna viðskiptanna nam 300 milljónum króna.
Vísir segir frá þessu og er vísað í skráningarlýsingu Haga vegna sölu á hlutum í fyrirtækinu í Kauphöll Íslands þar sem greint er frá þessum kaupum. Var handbært fé úr rekstri Haga notað til kaupanna en Jón Ásgeir Jóhannesson var á þessum tíma aðaleigandi Haga og stór eigandi og stjórnarformaður í 365 miðlum.
Kaupin fóru fram þann 2. nóvember 2008 eða tæpum mánuði eftir að bankahrunið reið yfir en þá var greint frá því í fjölmiðlum að hópur fjárfesta undir stjórn Jóns Ásgeirs hefði greitt 1,5 milljarð króna fyrir allt hlutafé 365 miðla.
Eiginkona Jóns Ásgeirs, Ingibjörg Pálmadóttir, er aðaleigandi fjölmiðlafyrirtækisins í dag sem gefur meðal annars út Fréttablaðið og rekur Bylgjuna og Stöð 2.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is