FME hafnar gagnrýni Guðlaugs Þórs. Engin lög brotin vegna Byrs og SpKef.

Fjármálaeftirlitið var lengi að yfirfara Byr og SpKef en rangt er að lög um eiginfjárhlutföll hafi verið brotin
Engin lög um lágmarks eiginfjárhlutfall sparisjóðanna SpKef og Byr hafa verið brotin eins og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, heldur fram. Það staðfestir forstjóri Fjármálaeftirlitsins sem viðurkennir að mál sparisjóðanna tveggja hefði mátt vinna hraðar.
Þingmaðurinn hélt því fram á RÚV að lög um eiginfjárhlutfall hefðu verið brotin mánuðum saman meðan sparisjóðirnir voru á forræði ríkisins án þess að Fjármálaeftirlitið, FME, hefði af því nokkur einustu afskipti. Báðir sparisjóðir hafa nú verið seldir til stóru bankanna.
Þetta segir Gunnar Andersen, forstjóri FME, ekki rétt og bendir á að í raun sé um fjögur mismunandi félög að ræða þegar talað sé um Byr og SpKef. Fyrri félögin hafi verið innan lögbundinna marka og seinni tvö félögin öðlast starfsleyfi samkvæmt neyðarlögunum.
Gunnar viðurkennir þó að of langan tíma hafi tekið að vinna mál sparisjóðanna tveggja af hálfu síns embættis. Útlit hafi verið fyrir í upphafi að eiginfjárhlutföll væru hærri en síðar kom í ljós að var raunin enda hafi tekið langan tíma að meta eignir sjóðanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is