Þriðjudagur 13.12.2011 - 20:42 - Ummæli ()

Svona var þá Kaupthinking. Keyptu bréf í sjálfum sér fyrir 96 milljarða árið 2008

Forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, hefur þráfaldlega neitað að nokkuð hafi verið athugavert við rekstur Kaupþings fyrir hrun

Sólarhring áður en Kaupþing banki féll og var tekinn yfir af íslenska ríkinu var 92 prósent alls eignasafns sviðs eigin viðskipta bankans í Kaupþing banka sjálfum. Keypti bankinn í sjálfum sér fyrir 96 milljarða króna árið 2008 eingöngu í því skyni að halda uppi verði á hlutum í bankanum.

Er þetta meðal þess sem embætti sérstaks saksóknara hefur rannsakað frá því að það embætti var sett á laggirnar en í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis eru þessu gerð veruleg skil og þar gengið út frá því að um markaðsmisnotkun hafi verið að ræða. Engar ákærur hafa þó verið gefnar út vegna þessa máls enn sem komið er.

Að því er fram kom í Kastljósi RÚV í kvöld stundaði Kaupþing það grimmt að kaupa eigin bréf sín og sérstaklega árið 2008 þegar halla fór undan fæti hjá bankanum. Þetta gerði bankinn með því að samnýta tvær deildir hans er áttu að vera aðgjörlega aðskildar til að selja og kaupa bréf í bankanum og halda upp verði hluta í kauphöllum bæði hér heima og erlendis.

Kaupin á eigin bréfum í magni hófust alls ekki þegar halla fór undan fæti heldur strax árið 2005 og stóðu stanslaust fram að falli bankans í október 2008. Allan þann tíma keypti bankinn meira í sjálfum sér en hann seldi en stór hluti sölu bréfanna fóru fram í utanþingssölu en slíkar sölur þurfti ekki að tilkynna sérstaklega til Fjármálaeftirlitsins. Bréfin fóru að mestu til vildarviðskiptavina bankans og ruku út enda lánaði bankinn sjálfur alfarið fyrir kaupunum og tók engin veð önnur en í bréfunum sjálfum.

Fjölmörg félög fengu hlut í Kaupþingi með þessum hætti og eru mörg þeirra enn til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara. Þar á meðal undarlegt félag sem sagt var í eigu sheiksins af Katar er keypti fimm prósenta hlut í bankanum örskömmu áður en hann féll. Í ljós hefur komið að þar var flétta sem bankinn stóð sjálfur að í samvinnu við sheikinn og Ólaf Ólafsson hjá Samskipum. Engir peningar komu inn í landið við þau kaup eins og látið var að liggja af forsvarsmönnum Kaupþings því bankinn lánaði alla upphæðina sjálfur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is