Fyrrum starfsmenn Kaupþings reyndu að kaupa eignir bankans á slikk eftir hrun

Það tók háttsetta starfsmenn Kaupþings aðeins nokkra daga að reyna að ná eignum út úr bankanum á lágmarksverði
Sumir háttsettra fyrrum starfsmanna Kaupþings banka komu að máli við slitastjórn bankans örfáum dögum eftir fall bankans og reyndu að kaupa ákveðnar eignir á 5 til 10 prósent af upphaflegu andvirði eignanna.
Kemur þetta fram í viðtali Morgunblaðsins við Steinar Þór Guðgeirsson, formann skilanefnar þrotabús Kaupþings, en skilanefndin verður lögð niður um næstu áramót eftir þriggja ára stanslaust starf.
Fyrir liggur í dag að heildarvirði eigna þrotabúsins nemur 2.175 milljörðum króna eða tvöfalt hærri upphæð en virði eigna Landsbanka Íslands en Steinar Þór segir það hafa verið erfitt og flókið að koma í veg fyrir að kröfuhafar bankans gengju að eignum bankans víðs vegar í veröldinni. Hafnar hann alfarið þeirri gagnrýni sem heyrst hafi að störf skilanefndanna séu ógegnsæ, siðlaus og markist af sérhagsmunagæslu.
Þá tók það aðeins nokkra sólarhringa eftir að Kaupþing féll áður en fyrrum starfsmenn hans settu sig í samband við skilanefndina og óskuðu eftir að kaupa ákveðnar eignir búsins.
„Í byrjun, þegar Kaupþing féll, biðu aðilar í löngum röðum. Þetta voru alls konar aðilar sem sáu þarna tækifæri og vildu kaupa eignir á brunaútsölu. Sumir þeirra voru fyrrverandi starfsmenn Kaupþings, sem nokkrum dögum eftir fall bankans voru farnir að vinna fyrir þessa aðila. Þeir þekktu auðvitað eignirnar út og inn og gátu verið býsna sannfærandi þegar þeir voru að reyna að fá okkur til að selja þær á 5-10% af upphaflegu andvirði.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is