Miðvikudagur 14.12.2011 - 08:42 - Ummæli ()

Langtímaatvinnuleysi eykst. Yfir 500 einstaklingar atvinnulausir þrjú ár eða lengur

Hratt fjölgar þeim er verið hafa án atvinnu í þrjú ár eða lengur. Sérstakt átak hefur verið sett í gang vegna þeirra sem lengst hafa verið án vinnu

Rúmlega fimm hundruð einstaklingar hér á landi hafa nú verið án atvinnu í þrjú ár eða lengur samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar.  Fjölgar hratt í hópi þeirra sem glíma við langtímaatvinnuleysi.

Fer Morgunblaðið yfir þann fjölda fólks sem ekki hefur fundið eða komist í störf í kjölfar bankahrunsins 2008 en þeim fer mjög fjölgandi. Hafa margir lýst yfir áhyggjum af hugmyndum um að taka þá af atvinnuleysisbótum sem hafa verið í þeirri stöðu lengur en þrjú og hálft ár sem þýðir að sveitarfélög landsins verða að hlaupa undir bagga. Er það þó takmörkunum háð hverjir eigi rétt á frekari aðstoð að þeim tíma liðnum.

Heildar atvinnuleysi í landinu í nóvember síðastliðnum mældist 7,1 prósent en 11.348 einstaklingar voru þá á atvinnuleysisskrá í heildina. Fjölgaði þeim um 0,3 prósent frá fyrri mánuði.

Meðal þess sem stjórnvöld hafa gert til að sporna við langtíma atvinnuleysi er að koma á fót sérstöku átaki sem nefnist Til vinnu! Er því sérstaklega ætlað að koma til móts við þá er hafa verið lengi án vinnu en markmiðið er að lækka atvinnuleysisstig um 0,7 prósent á næsta ári.

Runólfur Ágústsson, sem leiðir þá vinnu fyrir hönd Vinnumálastofnunar, segir um tímabundnar aðgerðir að ræða til að örva nýráðningar og fjölga störfum. Ráðningarferli atvinnurekenda gagnvart starfstengdum úrræðum verður einfaldað og hagkvæmni þess fyrir atvinnurekendur að ráða langtímaatvinnulausa aukin.

Grunnbætur muni þá fylgja nýjum starfsmanni af atvinnuleysisskrá upp í kjarasamningsbundin laun, óháð bótarétti innan kerfisins. Atvinnurekendur fá þannig styrk miðað við að viðkomandi sé að fullu tryggður, eða rúmar 161 þúsund kr. á mánuði auk framlags í lífeyrissjóð. Tímalengd slíks styrks getur orðið allt að sex mánuðir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is