Innherjaviðskipti með hluti í Högum? Fráleitar aðdróttanir segir Arion banki

Sniðugir fjárfestar með aðgengi að upplýsingum gátu reiknað út að staða Haga myndi batna við endurútreikning lána fyrirtækisins
Arion banki fullyrðir að allir starfsmenn bankans sem bjuggu yfir upplýsingum að hagnaður verslunarrisans Haga væri mun meiri á yfirstandandi ári en gefið var upp í útboði á fyrirtækinu í síðustu viku hafi verið útilokaðir frá kaupum á hlutum.
Hafnar bankinn alfarið hafnað aðdróttunum þess efnis að starfsmenn hans hafi keypt hluti í Högum vitandi að hagnaður fyrirtækisins á þessu ári er 25 prósent betri en gefið var upp í útboðslýsingu en tilkynning þess efnis var birt daginn eftir að úboðið hafði farið fram. Var eftirspurn eftir hlutum í Högum margfaldur og fengu mun færri en vildu.
Í Viðskiptablaðinu er fullyrt að upplýsingar um aukinn hagnað Haga muni hafa mikil jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækisins og allt bendi til að hagnaðurinn muni aukast um hálfan milljarð króna á þessu ári.
Þar segir að endurútreikningurinn á gengistryggðum lánum Haga hafi verið tilkominn vegna dóms í Mótormax málinu í sumar. Segir blaðið að gera megi því skóna að þeir sem hugsanlega hafa vitað af fyrirsjáanlegum endurútreikningi á lánum Haga hafi gert sér grein fyrir að hann myndi verða til þess að bæta fjárhagsstöðu fyrirtækisins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is